Fótbolti

Ellefu dagar í EM: Minnst af fjórum systkinum og spilar FIFA við soninn

Sindri Sverrisson skrifar
Sandra Sigurðardóttir spyrnir boltanum í leik gegn Bandaríkjunum í vetur.
Sandra Sigurðardóttir spyrnir boltanum í leik gegn Bandaríkjunum í vetur. Getty

Vísir telur niður í Evrópumót kvenna í fótbolta sem fram fer í Englandi í júlí og kynnir leikmenn íslenska landsliðsins. Hinn stóri og stæðilegi markvörður liðsins, Sandra Sigurðardóttir, er næst á dagskrá.

Eftir að hafa þurft að bíða þolinmóð sem varamarkvörður landsliðsins tók Sandra við keflinu af Guðbjörgu Gunnarsdóttur og hefur verið aðalmarkvörður Íslands síðustu þrjú ár – þó í harðri samkeppni við Cecilíu Rán Rúnarsdóttur að undanförnu.

Sandra hefur nýtt tækifærið vel og færir landsliðinu yfirvegun og reynslu í bland við gæði. Þetta er fjórða stórmótið sem hún fer á, því Sandra fór á EM 2009, 2013 og 2017, en það fyrsta sem hún kemur til með að spila á. 

Þessi 35 ára Siglfirðingur hefur varið mark Vals frá árinu 2016 en var áður hjá Stjörnunni og Þór/KA/KS auk þess að spila um skamma hríð með Jitex í sænsku úrvalsdeildinni. Hún er leikjahæsti leikmaður efstu deildar kvenna frá upphafi með 324 leiki.

Sandra er fimmfaldur Íslandsmeistari og þrefaldur bikarmeistari, og leikur væntanlega sinn 42. A-landsleik í dag þegar Ísland mætir Póllandi í vináttulandsleik ytra klukkan 13.30 að íslenskum tíma.

Sandra Sigurðardóttir hefur unnið fimm Íslandsmeistaratitla, þar af tvo með ríkjandi meisturum Vals.vísir/vilhelm

Fyrsti meistaraflokksleikur? 2001, með Þór/KA/KS.

Hver hefur kennt þér mest í fótbolta? Get ekki nefnt neinn einn aðila. Er búin að hitta svo marga góða þjálfara og einstaklinga á minni leið og allir hafa kennt mér eitthvað.

Lag sem kemur þér í gírinn fyrir leik? Er nokkurn veginn alæta en voða gott ef ég get sungið aðeins með.

Mætir einhver af fjölskyldu/vinum til að styðja þig á EM? Mamma og pabbi verða í stúkunni já.

Hvaða námi eða vinnu hefur þú sinnt (fyrir utan fótbolta)? Ég starfa sem sjúkraþjálfari.

Í hvernig skóm spilarðu? Adidas predator.

Uppáhalds lið í enska? Manchester United.

Uppáhalds tölvuleikur? Spila almennt ekki tölvuleiki en spila stundum með syni mínum, þá helst FIFA.

Uppáhalds matur? Er sushi kona, gott taco, indverskt… allskonar gott.

Fyndnust í landsliðinu? Langflestar eiga sín móment en Cessa [Cecilía Rán] verður að fá þetta klárlega en svo verð ég að fá að nefna að Allý læknir [Aðalheiður Rósa Jóhannesdóttir] leynir þvílíkt á sér.

Gáfuðust í landsliðinu? Held að IQ sé almennt bara mjög hátt í hópnum í heild.

Óstundvísust í landsliðinu? Skelli þessu á Elínu Mettu og Dagnýju, ekki spurning.

Hvaða lið vinnur EM (ef ekki Ísland)? Spánn og Frakkland eru alveg líkleg.

Hvað er skemmtilegast að gera milli æfinga og leikja í landsliðsferðum? Chilla og spjalla við stelpurnar og staffið, fá okkur góðan kaffibolla og taka rölt í skemmtilegu umhverfi. Gaman líka að skoða ef við erum á spennandi stöðum.

Besti andstæðingur/leiðinlegasti andstæðingur? Get eiginlega bara ekki svarað þessu.

Átrúnaðargoð í æsku? Peter Schmeichel og Oliver Kahn. Luis Figo var alltaf í miklu uppáhaldi. Hef síðan alltaf litið mikið upp til Eddu Garðars vinkonu minnar.

Nefndu eina staðreynd um þig sem fáir vita: Er minnst af fjórum systkinum.


Tengdar fréttir

Fjórtán dagar í EM: „Ég á sjö frabær systkini“

Vísir telur niður í Evrópumót kvenna í fótbolta sem fram fer í Englandi í júlí og kynnir leikmenn íslenska landsliðsins. Reynsluboltinn og harðhausinn Gunnhildur Yrsa Jónsdóttir er næst í röðinni.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×