Íslenski boltinn

FH-ingar stiga­lausir eftir fyrstu um­ferð í fyrsta sinn í ellefu ár

Runólfur Trausti Þórhallsson skrifar
FH-ingar töpuðu höfðu byrjað Íslandsmót á tapi síðan 2011. Það er þangað til nú.
FH-ingar töpuðu höfðu byrjað Íslandsmót á tapi síðan 2011. Það er þangað til nú. Vísir/Hulda Margrét

Besta deild karla í fótbolta hófst með stórleik. Íslands- og bikarmeistarar Víkings fengu FH í heimsókn og fór það svo að heimamenn unnu 2-1 sigur í stórskemmtilegum leik. Það er lítið óvanalegt við að tvöfaldir meistarar vinni heimaleik en sigur heimamanna var þó merkilegur fyrir nokkrar sakir.

Vísir spáir því að FH verði meðal efstu liða í sumar og muni að minnsta kosti stríða þeim liðum sem er almennt talin hvað best um þessar mundir. Það eru Víkingur, Breiðablik og Valur.

FH komst yfir eftir aðeins 30 sekúndna leik þökk sé marki hins síunga Steven Lennon en meistararnir svöruðu fyrir sig og unnu 2-1 sigur. 

Var þetta í fyrsta sinn sem FH vinnur ekki fyrsta leik sinn á Íslandsmóti síðan árið 2014 þegar liðið gerði 1-1 jafntefli við Breiðablik og fyrsta sinn sem liðið tapar leik síðan það tapaði 0-1 gegn Val árið 2011.

Fyrsti leikur FH á Íslandsmóti:

2022 1-2 tap fyrir Víkingi

2021 2-0 sigur á Fylki

2020 3-2 sigur á HK

2019 2-0 sigur á HK

2018 1-0 sigur á Grindavík

2017 4-2 sigur á ÍA

2016 3-0 sigur á Þrótti

2015 3-1 sigur á KR

2014 1-1 jafntefli við Breiðablik

2013 2-1 sigur á Keflavík

2012 1-1 jafntefli við Grindavík

2011 0-1 tap fyrir Val


Besta deildin er á Stöð 2 Sport en nýtt keppnistímabil hefst 18. apríl. Smelltu hér til að horfa á leiki og þætti. Besta deildin er hluti af Stöð 2 Sport Ísland sem kostar 3.990 kr. á mánuði og má kaupa hér.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×