Innlent

Einbeita sér að svæðinu þar sem olíubrákin fannst

Kolbeinn Tumi Daðason skrifar
Oddur Árnason er yfirlögregluþjónn hjá Lögreglunni á Suðurlandi.
Oddur Árnason er yfirlögregluþjónn hjá Lögreglunni á Suðurlandi. Vísir

Oddur Árnason, yfirlögregluþjónn hjá lögreglunni á Suðurlandi, segir leitina að flugvéli sem ekkert hefur spurst til síðan í gær í sjálfu sér hafa gengið vel. Líklega sé um að ræða fjölmennustu leitaraðgerðir Íslandssögunnar.

Fókusinn sé á Þingvallavatni vegna vísbendinga frá flugleið, símagögnum og svo olíubrák sem fannst í vatninu í morgun.

„Þetta er gríðarlega stórt verkefni. Við höfum ekki séð þennan fjölda björgunarsveitarmanna og viðbragðsaðila í leit áður á landinu. Ég held mér sé óhætt að fullyrða það. Þetta hefur í sjálfu sér gengið vel,“ segir Oddur.

Hann segir verið að fókusa á vísbendingar þess efnis að flugvélin hafi lent í sunnanverðu Þingvallavatni. Búnaður með fjölgeislamælum sé nýtt til mæla botn vatnsins. Annars vegar er um að ræða kafbát og hins vegar annan slíkan sem flýtur ofan á vatninu.

„Tækin gefa góða mynd af botninum og því sem þar er að finna.“

Útiloka ekki aðra möguleika

Oddur leggur áherslu á að ekki megi útiloka að flugvélina sé að finna annars staðar.

„Við þurfum að passa okkur á því að þó við teljum þetta vera líklegast þá getum við ekki fullyrt fyrr en við höfum fundið óyggjandi vísbendingar. Við erum að skoða alla flugleiðina,“ segir Oddur.

Kristín Ólafsdóttir ræddi við Odd við Þingvallavatn á fjórða tímanum.

Björgunarsveitarfólk gangi meðfram vatninu og skoði stórt svæði í kring. Fólk haldi leit áfram eins lengi og þurfi.

„Það er mikið í húfi og menn munu ekki hætta fyrr en við finnum eitthvað.“

Hann segir björgunarsveitirnar akkeri þjóðarinnar, klárar í slaginn og standi sig frábærlega vel.

Fylgst er með gangi mála í Vaktinni á Vísi.


Tengdar fréttir

Olíu­brák fannst á Þing­valla­vatni

Leit stendur enn yfir að flugvél með fjóra innanborðs sem ekkert hefur spurst til í rúman sólarhring. Flugvélin fór í loftið frá Reykjavíkurflugvelli um klukkan hálf ellefu í gær en um var að ræða útsýnisflug íslensks flugmanns með þrjá erlenda ferðamenn.



Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×