Innlent

Sex á­kærð fyrir stór­fellt fíkni­efna­laga­brot og peninga­þvætti

Hallgerður Kolbrún E. Jónsdóttir og Tryggvi Páll Tryggvason skrifa
Lagt var hald á um 522 kannabisplöntur á ýmsum stigum ræktunar. Myndin er úr safni.
Lagt var hald á um 522 kannabisplöntur á ýmsum stigum ræktunar. Myndin er úr safni. Getty/Konstantinos Tsakalidis

Héraðssaksóknari hefur ákært nokkra einstaklinga fyrir stórfellt fíkniefnalagabrot og peningaþvætti í tengslum við ræktun á fíkniefnum í iðnaðarbili í Kópavogi. Hjón og sonur þeirra eru á meðal þess eru ákærð í málinu.

Málið var þingfest í Héraðsdómi Reykjavíkur en í ákæru málsins segir að fimm karlmenn hafi verið staðnir að því að hafa 522 kannabisplöntur, níu kíló af maríjúana og sautján kíló af kannabislaufum í fórum sínum í iðnaðarhúsnæði við Smiðjuveg í Kópavogi árið 2016, þar sem plönturnar voru ræktaðar.

Þá er eiginkona eins þeirra, sem ákærður er fyrir fíkniefnalagabrotm ákærð fyrir peningaþvætti með því að hafa tekið við og aflað sér ávinnings af refsiverðri háttsemi að fjárhæð að lágmarki 27 milljónir króna.

Er hún sökuð um að hafa nýtt fjármunina til að kaupa umrætt iðnarhúsnæði en sama dag og afsal vegna þess var gefið út afsalaði hún húsinu til eignarhaldsfélags í eigu eiginmans hennar og sonar þeirra, sem einnig er ákærður í málinu.

Þá er eiginmaður hennar jafnframt ákærður fyrir peningaþvætti með því að hafa tekið við, geymt, aflað sér og ráðstafað ávinningi af refsiverðum brotum að lágmarksfjárhæð tæpum 20 milljónum króna. Er hann sakaður um að hafa tekið við fjármunum frá öðrum ákærðum í málinu, geymt þá og ráðstafað hluta fjármunanna til kaupa á iðnaðarhúsnæðinu. 

Krafin um að allt að tíu milljónir verði gerðar upptækar

Eru hinir fjórir meðákærðu jafnframt ákærðir fyrir peningaþvætti með því að hafa tekið við, geymt, aflað sér og ráðstafað ávinningi af refsiverðu brotum. Nema þær fjárhæðir milli 2,6 milljónum króna og 18 milljónum króna. 

Tveir mannanna, eiginmaðurinn og samstarfsmaður hans, sem eru fyrrum forsvarsmenn og eigendur eignarhaldsfélagsins ákærðir fyrir að hafa tekið á móti ávinningi af refsiverðum brotum á bankareikning félagsins: milljónunum 27 sem þeir vörðu í kaup á iðnaðarbilinu. 

Gerð er krafa til þess að sexmenningarnir verði dæmdir til refsingar auk þess sem krafist er að 522 kannabisplöntur, rúm níu kíló af maríhúana og rúm sautján grömm af kannabislaufum verði gerð upptæk. Þá er þess krafist að 110 gróðurlampar, 31 vifta, 110 straumbreytar, 66 svartir plastbakkar og ýmsir aðrir munir notaðir til kannabisræktunar veðri gerðir upptækir.

Þá hefur verið gerð krafa að ákærðu verði gert að sæta upptöku á fjárhæðum, allt frá 600 þúsund krónum upp í 10 milljónir króna.



Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×