Fótbolti

Fær tæpar 82 milljónir á mánuði fyrir að vera vin­gjarn­legur við á­horf­endur

Runólfur Trausti Þórhallsson skrifar
Neymar íhugar hvað hann á að gera við peninginn sem frúin í París gaf honum.
Neymar íhugar hvað hann á að gera við peninginn sem frúin í París gaf honum. EPA-EFE/YOAN VALAT

Brasilíumaðurinn Neymar þénar eflaust ágætlega fyrir að spila fótbolta með París Saint-Germain. Nú hefur klásúla í samningi hans vakið athygli. 

Fær hann fær tæplega 82 milljónir íslenskra króna á mánuði fyrir það eitt að vera vingjarnlegur sem og að segja ekkert neikvætt um félagið.

Neymar varð dýrasti leikmaður heims sumarið 2017 þegar Parísarliðið keypti hann á 222 milljónir evra frá Barcelona. Það samsvarar 33,5 milljörðum íslenskra króna. Hann hefur staðið sig með prýði síðan þá en draumur PSG um að vinna Meistaradeildina hefur ekki enn orðið að veruleika.

Samkvæmt Mundo Deportivo á Spáni fékk Neymar eina af undarlegustu klásúlum síðari ára í gegn er hann skrifaði undir nýjan fimm ára samning við félagið í maí á þessu ári. Um er að ræða svokallaðan „siðferðislegan“ bónus.

Eina sem Brasilíumaðurinn þarf að gera er að vera vingjarnlegur við áhorfendur, passa sig að gefa alltaf af sér við áhorfendur sem og að gagnrýna ekki félagið opinberlega. Þá má hann ekki tjá sig um taktískt upplegg liðsins.

Fyrir þetta fær hann 541,680 þúsund evrur á mánuði eða 6.500.160 milljónir evra á ári.

Mundo Deportivo greinir einnig frá því að Neymar hafi nú kostað PSG 489 milljónir evra síðan hann skrifaði undir en hann fær 43,4 milljónir evra á ári sem stendur. Sú tala mun hækka upp í 50,6 milljónir evra frá og með næsta ári.

Það er því ljóst að hinn 29 ára gamli Neymar ætti að eiga fyrri salti í grautinn og hver veit nem tilkoma Lionel Messi hjálpi félaginu í sinni eilífu leit að sigri í Meistaradeild Evrópu.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×