Í óleyfi um ókláruð Héðinsfjarðargöng 28. desember 2009 04:00 Þótt nú sé búið að sprengja í gegn eru göngin ekki tilbúin fyrir umferð.
Nokkuð hefur borið á því að fólk keyri í óleyfi um Héðinsfjarðargöng, að sögn Valgeirs Bergmanns Magnússonar, verkefnastjóra hjá Háfelli. Það sé hættulegt, því þótt búið sé að sprengja göngin verða þau ekki tilbúin fyrr en næsta haust. „Við höfum lent í því að fólk hefur verið að smygla sér þarna í gegn þegar við erum á staðnum, en það er meira um það að fólk sé að fara í gegn þegar við erum ekki,“ segir Valgeir. Oft hafi starfsmenn orðið varir við hjólför eða önnur ummerki þegar komið er til vinnu. Hann segir einstaka sinnum hafa staðið þannig á að fólk hafi fengið að fara í gegnum göngin í fylgd starfsmanna. Það sé hins vegar mjög hættulegt þegar fólk fari um göngin í óleyfi. „Það er ekki komin endanleg styrking á allt þannig að það getur enn hrunið úr loftinu. Þetta er enn þá vinnusvæði.“ Enn á einnig eftir að vinna við vegagerð, fráveituskurði og frágang á vatnsaga. Auk þess segir hann aðstæður í Héðinsfirði geta verið hættulegar. „Ef það er til dæmis snjósöfnun við Héðinsfjörð og fólk fer út af þá er ekkert símasamband þar.“ Valgeir segir að orðrómur hafi komið upp um að það stæði til að hafa göngin opin milli jóla og nýárs, því þá verði ekki unnið í göngunum. Það sé þó alls ekki rétt. „Það væri enn þá hættulegra, því þarna verður enginn fyrr en eftir áramót.“ Vegagerðin hefur því ákveðið að loka göngunum tryggilega fram til 4. janúar. Ráðstafanir verða þó gerðar til að opna þau í neyðartilfellum fyrir lögreglu, sjúkraflutninga og slökkvilið, ef svo ber undir. thorunn@frettabladid.is
Mest lesið Bandarískir sendimenn mælist til þess að Trump sé hunsaður Erlent „Aulalegasti bófinn í bænum“ Innlent Meintur byssumaður 21 árs góðkunningi leyniþjónustunnar Innlent Skothvellir við Hvíta húsið Erlent Skjálftahrina úti af Reykjanesi Innlent Óttast um framtíð dóttur sinnar þegar þau geta ekki lengur hjálpað Innlent Hefja formlegar viðræður og senda væna pillu í leiðinni Innlent Maðurinn er fundinn Innlent Sprengisandur: Páll stýrir þéttpökkuðum þætti Innlent Almennur borgari veitti bílnum eftirför Innlent Fleiri fréttir Enn öðru flugi aflýst Lögregluaðgerð á Laugavegi Sprengisandur: Páll stýrir þéttpökkuðum þætti Meintur byssumaður 21 árs góðkunningi leyniþjónustunnar Skjálftahrina úti af Reykjanesi Maðurinn er fundinn „Aulalegasti bófinn í bænum“ Hefja formlegar viðræður og senda væna pillu í leiðinni D og B endurnýja heitin í Fjarðabyggð Tómas tjáir sig um dóminn Á sýklalyfjum í 120 daga: „Þetta er enginn brandari“ Gæti dregið til tíðinda á næstu dögum eða stundum Sérsveitarmenn flugu til Ísafjarðar vegna vopnaðs manns „Einhvers konar toppur á ísjakanum“ Tvö mál ráði úrslitum Icelandair aflýsir fimm brottförum í dag Almennur borgari veitti bílnum eftirför Óttast um framtíð dóttur sinnar þegar þau geta ekki lengur hjálpað Flúðu eftir að hafa ekið á gangandi vegfaranda Tulsi Gabbard lætur af embætti Allt veltur á því hvort handaband teljist handsal Námsbækur barnanna búnar til „löngu áður en mamma og pabbi fæddust“ „Þetta hjól er næstum alltaf tómt“ Íslendingur vann 336 milljónir króna Sektaður fyrir að vera á nagladekkjum Hildur vilji Einar í meirihluta hvernig sem fer Var í geðrofi þegar Vinafélag Íslands-Norður-Kóreu var stofnað Bæjarstjóri Hafnarfjarðar fer yfir dramatíkina Undrandi á að Tómas fengi ekki að verja sig Verðlaunuð fyrir að bjóða unglingum upp á Sveitasælu Sjá meira