Reyndu að senda inn framboð eftir að frestur rann út 27. apríl 2007 19:11
Baráttusamtökin náðu aðeins að skila inn framboðslista fyrir komandi alþingiskosningar í einu kjördæmi áður en framboðsfrestur rann út á hádegi í dag. Samtökin gerðu hins vegar tilraun til að skila inn framboðum í hinum fimm kjördæmunum eftir að fresturinn rann út. Alls bjóða sex flokkar fram á landinu öllu en tæplega átta hundruð einstaklingar eru í framboði. Framboðsfrestur vegna þingkosninganna sem fram fara 12. maí næstkomandi rann út á hádegi í dag. Skila þurfti inn framboðum til yfirkjörstjórna í hverju kjördæmi fyrir sig. Alls skiluð sex framboð inn listum í öllum sex kjördæmunum: Framsóknarflokkurinn, Frjálslyndi flokkurinn, Íslandshreyfingin, Samfylkingin, Sjálfstæðisflokkurinn og Vinstrihreyfingin - grænt framboð. Baráttusamtök eldri borgara og öryrkjar náðu aðeins að skila inn framboði í einu kjördæmi áður en að fresturinn rann út, Norðausturkjördæmi. Alls eru tæplega áttahundruð manns á þrjátíu og sjö listum sem skilað var inn í dag. Baráttusamtökin höfðu boðað framboð í öllum kjördæmum en buðu aðeins fram í einu eins og áður sagði. Þegar fréttastofa hafði samband við Arndísi Björnsdóttur, talsmann Baráttusamtakanna, eftir að klukkan sló tólf í dag sagði hún Baráttusamtökin vera með framboðslista og undirskriftir meðmælenda vera tilbúið í öllum hinum fimm kjördæmunum. Tölvuvandræði og veikindi sín hafi orðið til þess að henni seinkaði að skila inn framboðunum. Arndís fór ásamt öðrum meðlimi Baráttusamtakanna í dómsmálaráðuneytið upp úr hálf eitt í dag til að reyna að athuga hvort hún gæti skilað framboðunum inn. Þar fékk hún þau svör að hún þyrfti að leita til formanns hverrar yfirkjörstjórnar fyrir sig. Arndís fór því næst á skrifstofu formanns yfirkjörstjórnar í Reykjavíkurkjördæmi norður. Þar sem hún afhenti framboð Baráttusamtakanna í Reykjavíkurkjördæmi norður, tveimur og hálfum tíma eftir að framboðsfrestur rann út. Arndís vonaðist til að sérstökum aðstæðum yrði sýndur skilningur og þeim leyft að bjóða sig fram. Formaður yfirkjörstjórnar í Reykjavíkurkjördæmi norður sagði að málið yrði tekið fyrir í yfirkjörstjórn í dag eða á morgun. Yfirkjörstjórnir munu hittast um helgina til að fara yfir alla þá framboðslista sem bárust í dag og kanna hvort þeir uppfylli öll skilyrði sem í gildi eru.
Mest lesið Kaffistofa Samhjálpar: Bjóða hús á tveimur stöðum Innlent Almenningur hafi aldrei átt séns Innlent Varaði Rússa við því að ráðast á NATO Erlent Haft samband við þá bændur sem búa næst gilinu Innlent Djúpur tunglmyrkvi sýnilegur frá Íslandi í nótt Innlent Ætlar ekki að láta kúga sig Innlent Rýnt í tollana: Ætla að láta Repúblikana finna til tevatnsins Erlent Heilsu Haraldar hrakar enn Erlent Maðurinn sem lést í Stuðlagili sagður pólskur Innlent Pallborðið: Satt, logið og umdeildar auglýsingar Innlent Fleiri fréttir Beint streymi frá opnum fundi Áfram Ísland Beint streymi frá opnum fundi Já til að sjá Fer fram á allt að tíu ára fangelsi í Reykholtsmálinu „Við höfum gott af því að rífast aðeins“ Almenningur hafi aldrei átt séns Óákveðnir hallist jafnan að minni breytingum Ætlar ekki að láta kúga sig Pallborðið: Satt, logið og umdeildar auglýsingar Alvarlega staða kalli á sameiginlegt átak Kaffistofa Samhjálpar: Bjóða hús á tveimur stöðum Forsendur brostnar og heilsu konungs hrakar Maðurinn sem lést í Stuðlagili sagður pólskur Djúpur tunglmyrkvi sýnilegur frá Íslandi í nótt Beint streymi: Háskólamenntaðir á húsnæðismarkaði Málið vegna fjársöfnunar Solaris tekið fyrir í héraðsdómi Þrjú heimilisofbeldismál til rannsóknar eftir nóttina Mikilvægt að fatlaðir geti tekið þátt í umræðunni Hafa augun opin fyrir fleiri „hjálparlausum krúttum á vappi“ Haft samband við þá bændur sem búa næst gilinu Svona var ávarp Kristrúnar vegna atkvæðagreiðslunnar Vandræðalegt þegar stjórnmálamenn komi inn á sviðið og ætli að breyta öllu Leikskóli spratt upp eins og gorkúla Afhjúpi ekkert nema þeirra eigin viðhorf til fólksins í landinu Pallbíll sem var illa lagt upphafið að nágrannaerjum Svipleg starfslok, í beinni frá fjöldafundi og söngkona sem syrgir Flaggað í hálfa stöng í bandaríska sendiráðinu Fjölmiðlanefnd sektar Þórarin um hálfa milljón Mikill munur á trausti til fjölmiðla í aðdraganda atkvæðagreiðslu Hvað gerist ef það verður jafnt? Eins og að hafa fimmtán menn inni á vellinum Sjá meira