Ingibjörg áfram formaður- Jóhanna forsætisráðherraefni Breki Logason skrifar 28. febrúar 2009 11:11 Frá blaðamannfundinum MYND/PJETUR
Á blaðamannafundi sem Samfylkingin í Reykjavík boðaði núna klukkan ellefu kom fram að Ingibjörg Sólrún Gísladóttir ætlar sér að vera áfram formaður flokksins. Hún mun hinsvegar ekki sækjast eftir fyrsta sætinu í prófkjöri flokksins. Jóhanna Sigurðardóttir mun bjóða sig fram í fyrsta sæti en Ingibjörg Sólrún mun leggja það fyrir landsfund flokksins sem haldinn verður í mars að Jóhanna verði forsætisráðherraefni flokksins. Ingibjörg Sólrún býður sig fram í annað sætið og mun áfram vera formaður flokksins eins og fyrr segir. Hljóti þær umrædd sæti í prófkjörinu munu þær leiða sitthvort Reykjavíkurkjördæmið í komandi kosningum. Í máli þeirra kom fram að þær sjái sig sem nokkurskonar tvíeyki í íslenskum stjórnmálum. Bentu þær á að það yrði þá einsdæmi að forsætisráðherraefni og formaður stjórnmálaflokks væru bæði konur. Einnig kom fram að þær gera ráð fyrri að Össur Skarphéðinsson bjóði sig fram í þriðja sæti í prófkjörinu.
Tengdar fréttir Fer á móti Ingibjörgu í formanninn Jón Baldvin Hannibalsson ætlar að bjóða sig gegn Ingibjörgu Sólrúnu Gísladóttur til formanns Samfylkingarinnar á komandi landsfundi flokksins. Hann hafði áður lýst því yfir að hann hyggðist bjóða sig fram ef Jóhanna Sigurðardóttir gerði það ekki. Hann stendur við þær yfirlýsingar og segist vera að fylgja kröfu Búsáhaldarbyltingarinnar um endurnýjun. 28. febrúar 2009 11:56 Helgi í fjórða sætið Helgi Hjörvar þingmaður ætlar að gefa kost á sér í 4.sæti í prófkjöri Samfylkingarinnar í Reykjavík. Verði það niðurstaðan mun Helgi skipa annað sætið í öðru hvoru Reykjavíkrukjördæmanna í komandi kosningum. Helgi hafnaði í fimmta sæti í síðasta prófkjöri. Hann segir kröfuna um endunýjun verða að haldast í hendur við reynslu. 28. febrúar 2009 13:06 Össur fer í þriðja sætið Össur Skarphéðinsson segist í samtali við fréttastofu ætla að bjóða sig fram í þriðja sæti í prófkjöri Samfylkingarinnar í ljósi nýjustu tíðinda úr flokknum. Hann segist styðja Jóhönnu og Ingibjörgu heilshugar. 28. febrúar 2009 11:28 Mest lesið Vilja tæpar tvö hundruð billjónir til varnarmála Erlent Allir Bretar fæddir eftir 2008 í lífstíðarbann frá tóbaki Erlent Tveir flokkar í Garðabæ útiloka samstarf Innlent Fiskflutningabíll valt á Þorlákshafnarvegi Innlent Þriðji þingmaðurinn segir af sér á viku Erlent Ingó veðurguð hefur fengið meira en nóg Innlent Greinir frá nauðgun eftir sýningu í Þjóðleikhúsinu Innlent Við þurfum að vera tilbúin að takast á við eldgosavá Innlent „Vitum ekkert hvað við eigum von á mörgum“ Innlent „Dreginn inn í umræðu þar sem engar staðreyndir eða neitt liggja fyrir“ Innlent Fleiri fréttir Við þurfum að vera tilbúin að takast á við eldgosavá Fiskflutningabíll valt á Þorlákshafnarvegi „Vitum ekkert hvað við eigum von á mörgum“ Tveir flokkar í Garðabæ útiloka samstarf Vaka kaus sér nýja forystu Segir ráðherra fá of lausan taum í nýjum sóttvarnalögum Dyflinarreglugerðin ekki afnumin þótt orðalag breytist Hættusvæði vegna hraunrennslis, almyrkvi og afmæli Sviptur réttindunum á staðnum Tilfærsla Sigríðar Bjarkar tímabundin Alma Möller fagnar nýjum sóttvarnalögum „Líður stundum eins og ég sé með pólitískan eltihrelli“ Grindavík og Hveragerði talin í mestri hættu vegna eldgosa Gæsluvarðhald framlengt yfir þremur í Dettifossmálinu Ekki hafi verið hægt að sýna fram á meinta nauðgun Forseti klökknaði þegar Þórdís Kolbrún kvaddi Megi búast við útskúfun úr samfélaginu eftir afplánun Orðinn máttvana í útlimum þegar hjálpin barst Sigríður Björk aftur færð til Gagnrýnin komi ekki á óvart en telja sig vera að gera rétt Kosningapallborð fréttastofu: Mun Sjálfstæðisflokkurinn halda velli í Garðabæ? Launamál í verkalýðshreyfingunni og þingmaður hætt kominn á kajak Ingibjörg þarf ekki að víkja í máli Margrétar Foksandur og rykagnir búa í þokunni Var bjargað úr sjónum eftir hálftíma: „Slysin gera ekki boð á undan sér“ Bílvelta á Hringbraut Umfangsmikil lögregluaðgerð vegna líkamsárásar Tungumálið gerir Ísland að landi tækifæranna Ingó veðurguð hefur fengið meira en nóg Hafi flestir verið að gera félögum greiða þegar þeir tóku við efnum í sófa og morgunkornskössum Sjá meira
Fer á móti Ingibjörgu í formanninn Jón Baldvin Hannibalsson ætlar að bjóða sig gegn Ingibjörgu Sólrúnu Gísladóttur til formanns Samfylkingarinnar á komandi landsfundi flokksins. Hann hafði áður lýst því yfir að hann hyggðist bjóða sig fram ef Jóhanna Sigurðardóttir gerði það ekki. Hann stendur við þær yfirlýsingar og segist vera að fylgja kröfu Búsáhaldarbyltingarinnar um endurnýjun. 28. febrúar 2009 11:56
Helgi í fjórða sætið Helgi Hjörvar þingmaður ætlar að gefa kost á sér í 4.sæti í prófkjöri Samfylkingarinnar í Reykjavík. Verði það niðurstaðan mun Helgi skipa annað sætið í öðru hvoru Reykjavíkrukjördæmanna í komandi kosningum. Helgi hafnaði í fimmta sæti í síðasta prófkjöri. Hann segir kröfuna um endunýjun verða að haldast í hendur við reynslu. 28. febrúar 2009 13:06
Össur fer í þriðja sætið Össur Skarphéðinsson segist í samtali við fréttastofu ætla að bjóða sig fram í þriðja sæti í prófkjöri Samfylkingarinnar í ljósi nýjustu tíðinda úr flokknum. Hann segist styðja Jóhönnu og Ingibjörgu heilshugar. 28. febrúar 2009 11:28