Vonbrigðin frá 1986 að baki 9. janúar 2010 06:30 Augnlæknirinn, maraþonhlauparinn og ljósmyndarinn á tvö lög í Eurovision-keppninni í ár. Mynd/GVA „
Ég hef alltaf haft virkilega gaman af Eurovision. Þetta er minn fótbolti, má segja," segir augnlæknirinn Jóhannes Kári Kristinsson sem á tvö lög í Eurovision-keppninni í ár. Fyrra lagið sem verður í fyrstu undankeppninni í Sjónvarpinu í kvöld er ballaðan You Knocked Upon My Door sem er sungin af Sigurjóni Brink. Hið síðara er einnig ballaða og nefnist Þúsund stjörnur, sem Arnar Jónsson flytur. Þetta er í fyrsta sinn sem Jóhannes Kári á lög í Eurovision og hlakkar hann mikið til að taka þátt. „Ég reyndar sendi inn lag þegar Gleðibankinn sigraði 1986 en það er býsna langt síðan. Þá var ég nítján ára gamall og var hundsvekktur að fá ekki lagið inn. En ég ákvað að taka þátt núna og sé ekki eftir því," segir hann. „Ég hef alltaf litið á þetta sem góðan vettvang fyrir skúffulagahöfunda sem eru ekki tengdir inn í tónlistarveröldina öllu jafnan." Draumurinn um þátttöku í Eurovision hefur því loksins ræst hjá Jóhannesi eftir 24 ára bið. „Eins og margir Íslendingar á þeim tíma hafði ég mjög háar hugmyndir um Ísland og þar á meðal möguleika mína á að taka þátt en þeir gengu ekki alveg þeir draumar. Svo tók læknisfræðin við og þá kannski lagði maður þetta aðeins á hilluna." Auk þess að semja lög í tómstundum sínum er Jóhannes mikill hlaupagarpur og hefur margoft tekið þátt í Reykjavíkurmaraþoninu. Einnig hefur hann mikinn áhuga á ljósmyndun og er duglegur við að mynda fjölskylduna sína, en hann er kvæntur þriggja barna faðir. Mestur krafturinn fer þó í laser-augnaðgerðirnar sem hann framkvæmir í Glæsibæ. „Síðasta ár var stærsta árið í okkar sögu. Það voru yfir 1.500 aðgerðir í fyrra og það er mjög spennandi og skemmtilegt að vinna við þetta." - fb
Mest lesið Karl Th. Birgisson er látinn Lífið Gömul leyndarmál koma upp á yfirborðið Bíó og sjónvarp Fóru áttatíu prósent fram úr áætlun Lífið Leiðir skilja hjá Siggu Dögg og Sævari Eyjólfs Lífið Dauðkveið fyrir tónleikunum en þeir komu á óvart Gagnrýni Þrjátíu árum fagnað með fullu húsi og mikilli matarveislu Lífið samstarf Streymisveitan Apple TV loksins á Íslandi Bíó og sjónvarp Óttinn við að vera of venjuleg drifkrafturinn Tíska og hönnun Lena Dunham orðin mamma með hjálp staðgöngumóður Lífið Blood of Dawnwalker: Tíminn er þinn helsti óvinur Leikjavísir Fleiri fréttir Karl Th. Birgisson er látinn Lena Dunham orðin mamma með hjálp staðgöngumóður Fóru áttatíu prósent fram úr áætlun Leiðir skilja hjá Siggu Dögg og Sævari Eyjólfs Kampakát yfir kampavíni og kavíar Amanda Seyfried og Thomas Sadoski skilin Hafi ekki sjálfur sparkað Macklemore: „Ég myndi aldrei bregðast aðdáendum“ Hundrað ára virðulegt setur með grænu baði og gufu Bob Mackie er látinn Friðrik Þór og Jóna Vigdís ástfangin Macklemore tjáir sig: „Fólk er drepið í dag og fólk verður drepið á morgun“ Æstir í nektarmyndir Mörthu Stewart Vakna við Star Wars-lagið alla morgna Hvað veistu um… Titanic? Húðdrottning bauð í gellugusu Ed Sheeran sparkar Macklemore Hið alræmda „Epstein drap sig ekki“-samsæri Ein pilla dró Panettiere til dauða Heldur sig til hlés og lifir skírlífi Vala Matt kom heljarinnar búslóð fyrir í sextíu fermetra íbúð Stjörnulífið: Í fyrsta skipti í bikiníi í útlöndum „Ég byrjaði að lesa kaflann og fór bara að gráta“ Skúli Jón og Jennifer gengin í hnapphelduna Tekur árásum á samfélagsmiðlum fagnandi Krakkatía vikunnar: Tollering, Sims og Einar Áskell Lady Gaga orðin mamma Herbert kveikti í myndverinu í fyrsta þætti Presturinn sem hataði kristinfræði Fréttatía vikunnar: Þagnargreiðsla, tannbursti og hálfvitar Sökuð um að siga fylgjendum á móður fyrrverandi Sjá meira