Innlent

Áhöfn Bylgju fékk verðlaun frá Slysavarnarfélaginu Landsbjörg

Jón Hákon Halldórsson skrifar
Óskar Matthíasson, skiptstjóri Bylgju VE 75, ásamt fjölskyldu sinni í fremri röð. Guðmundur Örn Jóhannsson framkvæmdastjóri SL og Hörður Már Harðarson formaður SL auk áhafnar Sæbjargar, skólaskips Slysavarnaskóla sjómanna í aftari röð.

Áhöfn Bylgju VE 75 hlaut viðurkenningu frá Slysavarnafélaginu Landsbjörg í gær, á sjómannadaginn, fyrir að hafa sýnt öðrum fremur góða öryggisvitund á námskeiðum Slysavarnaskóla sjómanna. Skipstjóri er Óskar Matthíasson og tók hann á móti viðurkenningunni fyrir hönd áhafnarinnar frá Herði Má Harðarsyni formanni Slysavarnafélagsins Landsbjargar. Viðurkenningin sem veitt er árlega er farandbikar sem afhentur er til varðveislu um borð í viðkomandi skipi í eitt ár ásamt veggskildi til eignar. Áhöfnin á Bylgju VE hlaut viðurkenninguna einnig árið 2007.

Fleiri fréttir

Sjá meira

×