Átelur skort á vilja vegfarenda til aðstoðar Óli Kristján Ármannsson skrifar 30. júlí 2014 07:00 Með því að draga úr hraða geta ökumenn dregið úr líkum á að bílar þeirra kastist til í vindhviðum. Fréttablaðið/Vilhelm
Mjög alvarlegt er ef almenningur sýnir ekki vilja til aðstoðar í neyðartilfellum, að mati Rannsóknarnefndar samgönguslysa. Þetta kemur fram í skýrslu nefndarinnar frá því í byrjun mánaðarins um banaslys sem varð á þjóðvegi eitt í Norðurárdal fyrsta mars á síðasta ári. Ökumaður missti vald á jeppabifreið í vindhviðu og tólf ára drengur sem var farþegi í aftursæti lét lífið. Fram kemur að vindhviður hafi numið 20 metrum á sekúndu og vegur hafi verið blautur. Pilturinn, sem var í bílbelti, svaf í aftursætinu þegar slysið átti sér stað. Annar farþegi í bílnum stóð við veginn eftir veltuna og gaf merki um aðstoð en nokkrir vegfarendur óku samt fram hjá slysstaðnum án þess að stöðva eða bjóða fram aðstoð. „Þegar alvarleg slys eiga sér stað eru almennir vegfarendur oft fyrstir til aðstoðar og aðhlynningar á vettvangi. Almenn kunnátta í skyndihjálp getur þá reynst dýrmæt, meðan beðið er eftir lögreglu, sjúkraflutningamönnum og læknum,“ segir í skýrslu nefndarinnar. Fjölmörg dæmi séu um að aðhlynning vegfarenda fyrstu mínútur eftir slys, hafi skipt sköpum.Auka þarf fræðslu Rannsóknarnefnd samgönguslysa hefur frá árinu 1998 rannsakað átta banaslys í umferðinni þar sem vindhviða er talin orsakaþáttur. Í slysunum átta létust tíu manns. Í skýrslu um banaslys sem varð við Silfrastaði í mars í fyrra ítrekar nefndin fyrri ábendingu um að auka þurfi fræðslu í ökunámi og í áróðri til almennings um áhrif færðar, vinds og vindhviða á stöðugleika ökutækja.
Mest lesið Höfuðborgarsvæðið skalf Innlent Fundið brak úr flugvélinni sem týndist á leið frá Bermúda Erlent Viðbúnaður á slóðum Vítisengla Innlent Katla skelfur Innlent Mikill viðbúnaður eftir að óþekktur hlutur fannst í sjónum Erlent Átta í bílunum fjórum: Sumir alvarlega slasaðir Innlent Lægðin ætlar ekki að láta okkur í friði alveg strax Veður Taka sig upp á ógnarhraða og smella beltinu af Innlent Salma nýr formaður ungra Miðflokksmanna Innlent Ók bílnum yfir kant og upp á gras en hafnaði að lokum á ljósastaur Innlent Fleiri fréttir Ók bílnum yfir kant og upp á gras en hafnaði að lokum á ljósastaur Höfuðborgarsvæðið skalf Viðbúnaður á slóðum Vítisengla Katla skelfur Salma nýr formaður ungra Miðflokksmanna „Okkur finnst við vera undanskilin“ Viðvörunarmerki fyrir íslenskt samfélag Taka sig upp á ógnarhraða og smella beltinu af Átta í bílunum fjórum: Sumir alvarlega slasaðir Smella af sér bílbeltunum á ógnarhraða og breytingar í Kerlingarfjöllum Gul viðvörun eftir stóra skriðu Illa brugðið en heill á húfi Handtekinn grunaður um að beita piparúða Lýsa eftir Halldóri Inga „Of margar sögur af vondri meðferð“ Halda hækkunum innan við 2,5 prósent og hætta við lækkun systkinaafsláttar Íbúar gáttaðir eftir ofrukkanir frá Vegagerðinni Aurskriða féll á veginn og honum lokað Starfsmaður Reykjavíkurborgar smitaðist af nóróveiru Heiða í veikindaleyfi Fagfélögin kalla eftir heimild til að slíta kjarasamningum Unglingar bundnir og skildir eftir við heimili Fara fram á 16 ár yfir meintum morðingja Allir sautján frjálsir ferða sinna „Við erum óþolinmóð“ Minni gjaldahækkanir kosti ríkissjóð 2,5 milljarða Þetta eru stæðin sem borgin hefur endurheimt Segir ágreininginn í Landsvirkjun ekki snúast um arðgreiðslur Geri málið tortryggilegt að neita að svara „Við höfum séð mikla aukningu á því á Íslandi“ Sjá meira