Sæagra á boðstólum Sægreifans 30. nóvember 2009 06:00 Sumt að fara af stað? Kjartan mataður af Sæagra.
Kjartan Halldórsson í Sægreifanum á Geirsgötu hefur vakið heimsathygli með humarsúpunni sinni. Í dag kynnir hann til sögunnar nýja súpu, sem hann kallar Sæagra. „Þetta er orkurík hamingjusúpa. Í henni eru sæbjúgu og ýmislegt annað sem ég gef ekki upp hvað er,“ segir Kjartan. Hann segir Austurlandabúa óða í sæbjúgu og að vissu leyti sé fyrirbærið vannýtt á Íslandi. Sæbjúga telst til skrápdýra, það er að segja, það er hvorki fiskur né gróður. Sæbjúgu eru talin heilnæm, meðal annars góð fyrir húð, augu og þvagfærakerfi. Síðast en ekki síst eru sæbjúgun sögð hafa jákvæð áhrif á kynorku og þaðan kemur nafn súpunnar, Sæagra. „Dauðir fuglar lifna ekki við þótt þeir fái sér súpu, en ef eitthvað er í gangi á annað borð þá getur sumt farið af stað,“ segir Kjartan og dregur augað í pung. Hin heimsfræga humarsúpa Sægreifans hefur selst í óhemju magni í gegnum tíðina og verður að sjálfsögðu áfram á boðstólum. Sæagrað er bara viðbót. „Hún verður nokkrum hundraðköllum ódýrari en humarsúpan og ég á fastlega von á að hróður hennar berist jafn víða. Enda er hún svakalega bragðgóð,“ segir Kjartan. - drg
Mest lesið Eliza Reid var meðal gesta í brúðkaupinu Lífið Þórdís Elva er gengin út Lífið Hozier skemmti sér á almyrkvahátíð Tónlist Ólafur Darri herjar á ringlaðan Jamie Dornan Bíó og sjónvarp Dorrit vill biðja eigendurna afsökunar Lífið Engin stereótýpa: „Það breyttist allt þegar ég var í fimmta eða sjötta bekk“ Áskorun Efna til söfnunar í minningu Hennings Lífið Styrkir Minningarsjóð Bryndísar Klöru á Menningarnótt og skorar á aðra Tónlist Krakkatía vikunnar: Tinni, flekar og stór augu Lífið Hunter Schafer alsæl eftir Íslandsför Lífið Fleiri fréttir Eliza Reid var meðal gesta í brúðkaupinu Þórdís Elva er gengin út Efna til söfnunar í minningu Hennings Dorrit vill biðja eigendurna afsökunar Hunter Schafer alsæl eftir Íslandsför Krakkatía vikunnar: Tinni, flekar og stór augu Þórdís Kolbrún fékk hlýjar móttökur Adam Driver mættur í Marvel-heiminn Fréttatía vikunnar: Björk, Usher og peningaþvætti Barbie-framhald í uppnámi vegna launakrafa Robbie Williams einhverfur Hálfsextugur Hamm að verða pabbi í fyrsta sinn Hjartnæm athöfn þegar Gunnar Þórðarson var jarðsunginn Dorrit sendir rabbínanum tóninn Berskjölduð og óttaslegin eftir skilnaðinn og framtíðin óráðin Jóhanna Guðrún ólétt Útför Gunnars Þórðarsonar Dreymir um að halda næstu Kaleo-tónleika á Vestfjörðum Emmsjé edrú í sjö ár Fór á skeljarnar undir almyrkvanum Einelti kvenna á vinnustað lúmskt og einkennist af gaslýsingu Hvað veistu um… kirkjur á Íslandi? Þjóðir sem eigi í vopnuðum átökum megi ekki halda Eurovision Guðni var lokaður inni í síðasta almyrkva: „Ég man þennan morgun enn“ Móðir Perezar Hilton sækir um tímabundið forræði yfir börnunum Jói Pé og Molly selja skrifstofuhæð innréttaða sem íbúð OnlyFans-stjarna dæmd fyrir að stinga kærastann til bana Ocasio-Cortez á lausu Frægustu mágar landsins Office-stjarna með ólæknandi krabbamein Sjá meira