World Class sú besta í heimi 11. maí 2009 03:00 world class Dálkahöfundurinn Elliott Hester segir að World Class sé besta líkamsræktarstöð heimsins.
Líkamsræktarstöðin World Class í Laugum er sú besta í öllum heiminum að mati hins virta dálkahöfundar Elliott Hester. Í grein í breska dagblaðinu The Morning Star segist hann hafa heimsótt margar líkamsræktarstöðvar um allan heim, þar á meðal í Svíþjóð og Singapúr, en aldrei hafi hann kynnst eins miklum gæðum og á Íslandi. „Af öllum þeim líkamsræktarstöðvum sem ég hef heimsótt á 27 ára ferðalögum mínum þá er World Class-salurinn og Laugar Spa á Íslandi í sérflokki,“ skrifar hann. „Þegar ég gekk inn í líkamsræktarsalinn leið mér eins og James Bond sem gæti valið úr fjölda háleynilegra vopna. Ég horfði inn í rauðan augnskannann og var tilbúinn til að taka á því og láta dekra við mig.“ Hester bætir því við að svo mörg tæki séu í líkamsræktarsalnum að hvaða einkaþjálfari sem er myndi gapa af undrun. „Áður en ég heimsótti World Class hafði ég aldrei eytt meira en hálftíma á hlaupabretti. En vegna þess að ég gat notað heyrnartól og horft á Star Wars: Attack of the Clones á einum af fjölmörgum sjónvarpsskjáum skokkaði ég látlaust í níutíu mínútur.“ Greinarhöfundur er einnig sérlega hrifinn af Laugum Spa og fer fögrum orðum um gufuböðin sjö sem þar er að finna og afslöppunarherbergið þar sem hann hvíldi lúin bein eftir erfiði dagsins. - fb
Mest lesið Mig langaði til að öskra: „Ég skal segja allt af létta!“ Gagnrýni Harbour rýfur þögnina Bíó og sjónvarp Hvað veistu um… árið 2010? Lífið Hefur þegar fengið starfstilboð Lífið „Það má herma“ Tíska og hönnun Swae Lee heldur tónleika á Íslandi Tónlist Marteinn Helgi Sigurðsson er látinn Lífið Lífseigustu mýturnar um offitu: „Það er ekki sjúkdómur að fitna“ Lífið Guðrún Ýr og Birnir í eina sæng Tónlist „Ég var löngu tilbúin að giftast honum“ Lífið Fleiri fréttir Marteinn Helgi Sigurðsson er látinn Hefur þegar fengið starfstilboð Hvað veistu um… árið 2010? Lífseigustu mýturnar um offitu: „Það er ekki sjúkdómur að fitna“ Sjö heitustu brúðkaupstrendin í sumar „Ég var löngu tilbúin að giftast honum“ Rassaumhirða karla í sókn Leggja áherslu á liti, gleði og glimmer Segir Weinstein hafa bannað sér að vera lesbía Hætt saman en ennþá vinir Varð ástfanginn á sama tíma og móðir hans kvaddi Lára Clausen lýsir eftir stolnum Mustang Blendnar tilfinningar að fara á vinnumarkað á ný Lofuðu svörtu fólki lækningu en blekktu það til dauða „Ég passaði mig sérstaklega á því að tala ekki um Evrópusambandið“ Vigdís Häsler og Sveinn Andri gengu í hnapphelduna Huggulegustu hommar landsins „loksins“ giftir Adam Páls fann ástina í örmum Moniku Stjörnulífið: Rapparar ástfangnir upp fyrir haus Myndaveisla: Líf og fjör úti á Granda Hringdi strax í pabba og sagði honum frá Bond-leiknum Krakkatía vikunnar: Jónas, þjóðardýr og einmanalegt áhugamál Verður yngsta skvettan í þingflokki Sjálfstæðismanna Vesturbæingar kvöddu sögufræga bensínstöð Allt að verða klárt fyrir Sjómannadaginn í Reykjavík Allir og amma þeirra senda kónginum afmæliskveðju Fann ástina á Tinder og endaði í Texas Þegar tónlistin heltók lögmanninn Fréttatía vikunnar: Dua, Danir og Carpenter Anthony Head er látinn Sjá meira