Innlent

Skulu aka sjúkraliða til vinnu

Heilbriðgisstofnun Suðurnesja Gert að draga úr útgjöldun en sparnaðarráðstöfun úrskurðuð brot á kjarasamningi.
Fréttablaðið/Pjetur
Heilbriðgisstofnun Suðurnesja Gert að draga úr útgjöldun en sparnaðarráðstöfun úrskurðuð brot á kjarasamningi. Fréttablaðið/Pjetur

Heilbrigðisstofnun Suðurnesja var óheimilt að hætta akstri sjúkraliða frá Reykjanesbæ til vinnu í Grindavík. Þetta er niðurstaða Félagsdóms.

Umræddur sjúkraliði er kona úr hópi sjúkraliða sem býr í Reykjanesbæ en starfar á hjúkrunarheimilinu Víðihlíð í Grindavík. Heilbrigðistofnun Suðurnesja hefur séð sjúkraliðunum fyrir ferðum til og frá Víðihlíð og greitt þeim laun fyrir ferðatímann. Þetta fyrirkomulag telur Sjúkraliðafélag Íslands byggjast á ákvæði kjarasamnings við ríkið sem segir að vinni starfsmaður fjarri leiðum almenningsvagna skuli honum séð fyrir ferðum til og frá vinnustað eða fá greiddan ferðakostnað og að ferðirnar teljist til vinnutíma.

„Í ljósi aðstæðna í þjóðfélaginu og tilmælum fjármálaráðuneytis um lækkun útgjalda, hefur sú ákvörðun verið tekin að hætta keyrslu starfsmanna til og frá Víðihlíð á vegum stofnunarinnar auk greiðslna fyrir aksturstíma,“ sagði í bréfi sem sjúkraliðarnir fengu frá forstjóra heilbrigðisstofnunarinnar fyrir jól í fyrra. Þessa ákvörðun kærði Sjúkraliðafélag Íslands til Félagsdóms.

Rök heilbrigðisstofnunarinnar voru meðal annars þau að stofnuninni hafi ekki verið skylt að aka sjúkraliðanum en gert það engu að síður vegna skorts á starfsfólki í Grindavík. Félagsdómur hefur hins vegar ógilt ákvörðunina um að hætta akstrinum þar sem hún sé andstæð kjarasamningi. - gar




Fleiri fréttir

Sjá meira


×