Skulu aka sjúkraliða til vinnu 11. maí 2009 03:00 Heilbriðgisstofnun Suðurnesja Gert að draga úr útgjöldun en sparnaðarráðstöfun úrskurðuð brot á kjarasamningi. Fréttablaðið/Pjetur
Heilbrigðisstofnun Suðurnesja var óheimilt að hætta akstri sjúkraliða frá Reykjanesbæ til vinnu í Grindavík. Þetta er niðurstaða Félagsdóms. Umræddur sjúkraliði er kona úr hópi sjúkraliða sem býr í Reykjanesbæ en starfar á hjúkrunarheimilinu Víðihlíð í Grindavík. Heilbrigðistofnun Suðurnesja hefur séð sjúkraliðunum fyrir ferðum til og frá Víðihlíð og greitt þeim laun fyrir ferðatímann. Þetta fyrirkomulag telur Sjúkraliðafélag Íslands byggjast á ákvæði kjarasamnings við ríkið sem segir að vinni starfsmaður fjarri leiðum almenningsvagna skuli honum séð fyrir ferðum til og frá vinnustað eða fá greiddan ferðakostnað og að ferðirnar teljist til vinnutíma. „Í ljósi aðstæðna í þjóðfélaginu og tilmælum fjármálaráðuneytis um lækkun útgjalda, hefur sú ákvörðun verið tekin að hætta keyrslu starfsmanna til og frá Víðihlíð á vegum stofnunarinnar auk greiðslna fyrir aksturstíma,“ sagði í bréfi sem sjúkraliðarnir fengu frá forstjóra heilbrigðisstofnunarinnar fyrir jól í fyrra. Þessa ákvörðun kærði Sjúkraliðafélag Íslands til Félagsdóms. Rök heilbrigðisstofnunarinnar voru meðal annars þau að stofnuninni hafi ekki verið skylt að aka sjúkraliðanum en gert það engu að síður vegna skorts á starfsfólki í Grindavík. Félagsdómur hefur hins vegar ógilt ákvörðunina um að hætta akstrinum þar sem hún sé andstæð kjarasamningi. - gar
Mest lesið Evrópuvaktin: Úrslitin ráðast Innlent Hvað segja veðbankarnir? Innlent Bein útsending: Kosningavaka Sýnar Innlent Þurfti að halda áfram að vinna þrátt fyrir hættulegt ástand á meðgöngu Lífið Tíu dósir ratað í ruslafötuna en rest á jörðina Innlent Hafði afskipti af ellefu ára stúlku í miðbænum eftir miðnætti Innlent Hvenær birtast tölurnar í kvöld og nótt? Innlent Möguleiki á stórum flóðbylgjum úr íslenskum jökullónum Innlent „Nú er komið að mér“ Erlent Segir Katrínu sparka í konuna sína Innlent Fleiri fréttir Sextíu prósent segja nei samkvæmt fyrstu tölum í Suðurkjördæmi Hvenær birtast tölurnar í kvöld og nótt? Bjargað úr sjálfheldu í Reynisfjöru Bein útsending: Kosningavaka Sýnar Evrópuvaktin: Úrslitin ráðast Hvað segja veðbankarnir? Valkyrjurnar halda blaðamannafund Tíu dósir ratað í ruslafötuna en rest á jörðina Geri lítið úr fyrirmyndarstarfi Átröskun vangreind hjá strákum og sífellt yngri börn þurfa aðstoð Vísbendingar um aukna kjörsókn Kjörsókn meiri en á sama tíma í síðustu þingkosningum „Þetta gæti ekki verið meira spennandi“ Allt bendi til lítils jökulshlaups Bjart og þurrt þegar þjóðin gengur að kjörborðinu Hafði afskipti af ellefu ára stúlku í miðbænum eftir miðnætti Möguleiki á stórum flóðbylgjum úr íslenskum jökullónum Óttast aukið álag eftir fjöldauppsagnir hjá Reykjavíkurborg Sökuðu rektor um meiðyrði og stjórnarskrárbrot og hótuðu skaðabótamáli Hnífjafnt í síðustu könnuninni Umræðan hafi verið ruglingsleg og á lágu plani Skálmöld brá í óleyfi fyrir í „vandræðalegu þjóðrembumyndbandi“ Símtöl almennt málefnaleg en dónaskapur inni á milli Aldrei komið í þvílíkt fjölmenni þar sem er svona mikil þögn Jákvæð „sjálfsmyndarkrísa“ í Brussel Forystukonum ríkisstjórnarinnar brugðið vegna alvarlegra hótana Líflátshótanir, þandar taugar og bein útsending frá norsku konungshöllinni Voru á Íslandi þegar maðurinn var drepinn Missti öxi sem hann hafði inni á sér og var handtekinn Uppsagnirnar hafi komið eins og reiðarslag Sjá meira