Innlent

Fimm þingmenn VG ætla að vera á móti

Fimm landsbyggðarþingmenn VG lýstu því yfir á þingflokksfundi á laugardag að þeir muni greiða atkvæði gegn þings­ályktunartillögu um aðildarumsókn við Evrópusambandið.

Þetta voru þau Jón Bjarnason, Lilja Rafney Magnúsdóttir, Ásmundur Einar Daðason, Atli Gíslason og Þuríður Backman.

„Við settum þennan fyrirvara þannig að öllum væri ljóst að ekki væri hægt að ganga að þingflokki VG sem vísum," segir Þuríður Backman.

Þeir þingmenn sem blaðið ræddi við í gær gera þó lítið úr því að myndað hafi verið sérstakt bandalag innan þingflokksins gegn ESB, og kannast ekki við að hinir níu þingmenn flokksins séu hlynntir aðildarumsókninni.

Í gær var formlega mynduð fyrsta vinstristjórn Íslands. Hún hefur á stefnuskrá sinni að skapa norrænt velferðarsamfélag. Að leggja þingsályktunartillögu fyrir Alþingi um aðildarumsókn að Evrópusambandi. Að fiskveiðiheimildir verði innkallaðar í áföngum og þeim úthlutað að nýju.

Meginverkefni stjórnar Samfylkingar og VG á sviði efnahagsmála verði að ná aftur jafnvægi í rekstri ríkissjóðs, endurreisa fjármálakerfið, ná þjóðarsátt um efnahagsráðstafanir og vinna traust umheimsins á ný. Í yfirlýsingu segir að efnahagsástandið kunni að versna áður en það batnar.

Forystumenn Samtaka atvinnulífsins og Alþýðusambands eru ánægðir með fyrirhugað samráð ríkisstjórnar við þá. Forseti ASÍ segist ekki sjá betur en að stjórnin svari kalli vinnumarkaðarins.

Friðrik J. Arngrímsson, framkvæmdastjóri LÍÚ, er ósáttur við fyrirhugaðar innkallanir. Nú verði að sannfæra fólk um hversu skaðvænlegar þær séu. „Það væri betra hjá þeim að þjóðnýta fyrirtækin strax," segir hann.

Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, formaður Framsóknar, telur þetta eina dapurlegustu stjórnarmyndun lýðveldisins. Stjórnin ætli að láta stjórnarandstöðu skera úr um Evrópumál.

Birgitta Jónsdóttir, þingflokksformaður Borgarahreyfingar segir hins vegar að þingleiðin til Evrópu sé skásta lausnin.

Varaformaður Sjálfstæðisflokks, Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir, segir að stjórnarflokkarnir hafi ekki unnið úr Evrópumálunum. Þeir ætli að ríkisvæða sjávar­útveginn.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×