Svíar kaupa goðaheim Friðriks 11. maí 2009 04:00 Friðrik Erlingsson. Sænskt bókaforlag gefur út bók hans. fréttablaðið/arnþór „
Já, Svíar ákalla þrumuguðinn Þór. Samningurinn einn og sér bjargar ekki gjaldeyrismálum þjóðarinnar en þetta brýtur ísinn erlendis og gefur byr í seglin, bæði hvað varðar frekari samninga erlendis og eins dreifingu myndarinnar," segir Pétur Már Ólafsson útgefandi. Bókaforlagið Veröld hefur gengið frá samningum við Natur och Kultur í Svíþjóð um útgáfu á bókinni Þór - í Heljargreipum eftir Friðrik Erlingsson. Að sögn Péturs er Natur och kultur fornfrægt forlag en meðal rithöfunda á þeirra snærum eru Philip Pullman, Joyce Carol Oates, Norman Mailer og Einar Már Guðmundsson. „Sagan Þór - í Heljargreipum var unnin í samvinnu við tölvuteiknimyndafyrirtækið CAOZ en kvikmynd byggð á sögunni er nú í bígerð í leikstjórn Óskars Jónassonar. Áætlað er að framleiðsla myndarinnar kosti á annan milljarð króna," segir Pétur Már. Bók Friðriks kom út hjá Veröld fyrir síðustu jól og fékk lofsamlega dóma. En sagan segir af Þór sem er ungur og ofursterkur járnsmiður í Mannheimum. Þór veit ekki að hann er sonur Óðins sem er æðstur Ása en þegar Þór fær í hendur Mjölni, öflugasta vopn veraldar, hefst æsileg atburðarás. Bókin seldist í nálega þrjú þúsund eintökum hér heima og Pétur Már bendir á að Benjamín dúfa eftir Friðrik hafi verið seld út um allar jarðir á sínum tíma. „Til Finnlands, Danmerkur, Litháen, Ítalíu, Svíþjóðar og víðar. Nú síðast kom hún út í Bretlandi, fjórtán árum eftir að hann hlaut Íslensku barnabókaverðlaunin fyrir þá merku bók."- jbg
Mest lesið Reyndist sannspár um koss dauðans Lífið Michael nær ekki að fela fílinn í herberginu Gagnrýni Bubbi komst ekki í jarðarför Bjögga Lífið Birna María og Egill eignuðust dreng Lífið „Ég stöðvaði þessar samfarir“ Lífið Stórmynd Sádanna stefnir í stærsta flopp sögunnar Bíó og sjónvarp Bestu kvikmyndir 21. aldarinnar Bíó og sjónvarp Fíknin tók yfir: „Vorum ótrúlega nánar vinkonur“ Lífið Þetta hefur gefið mér nýtt líf Lífið samstarf Oddvitaáskorunin: Að stöðva Borgarlínuna efst á lista Lífið Fleiri fréttir Oddvitaáskorunin: Ice ekki lengur eins viðeigandi viðurnefni vestanhafs Birna María og Egill eignuðust dreng Oddvitaáskorunin: Að stöðva Borgarlínuna efst á lista Reyndist sannspár um koss dauðans Britney ákærð fyrir ölvunarakstur „Nú erum við komin í alvöru Drakúlaleik“ Bubbi komst ekki í jarðarför Bjögga „Ég stöðvaði þessar samfarir“ Oddvitaáskorunin: „Sérvitur sveitavargur“ Stór brjóst eru stór Hvað veistu um… Stellu í orlofi? Fengu Dern í stað Bonham Carter Jóhann Alfreð með púlsmæli og fékk að finna fyrir því Úrslitakvöld Eurovision verður í beinni á Rúv 2 Rándýr trefill varð ælu Bjargar að bráð á Prikinu Fíknin tók yfir: „Vorum ótrúlega nánar vinkonur“ Dorrit djammaði með Adwoa Aboah á Sikiley Ástin blómstrar hjá Svala og Birnu Oddvitaáskorunin: Úr jail-inu í Yale Sjóðandi einhleypar sumarskvísur Kolféllu fyrir Brooklyn í hjónasportinu Fögnuðu fjörutíu árum Krýsuvíkursamtakanna Oddvitaáskorunin: Besti landsbyggðarandinn þrátt fyrir fjölmenni Sigur Rós spilar í 100 ára afmæli Attenboroughs Andar sig reyklaus í gegnum kosningabaráttuna Ókunnug kona í salnum lifði sig gríðarlega inn í þáttinn Adam fór á skeljarnar í Kerlingarfjöllum Mínusmeðlimir fóru yfir rugltímann: „Ekki drukkið í fimmtán ár“ Albert keypti þakíbúð á hálfan milljarð Höguðu sér vel á árshátíð Haga Sjá meira