Knattspyrnudeild Breiðabliks hlaut jafnréttisviðurkenningu Haukur Viðar Alfreðssson skrifar 11. september 2013 22:41 Ármann Kr. Ólafsson, bæjarstjóri Kópavogsbæjar afhenti Borghildi Sigurðardóttur, formanni knattspyrnudeildar Breiðabliks, viðurkenningarskjal í kvöld.
Knattspyrnudeild Breiðabliks hlaut í kvöld jafnréttisviðurkenningu jafnréttis- og mannréttindaráðs Kópavogsbæjar. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Kópavogsbæ. Ármann Kr. Ólafsson bæjarstjóri afhenti formanni knattspyrnudeildarinnar, Borghildi Sigurðardóttur, viðurkenningarskjal því til staðfestingar í hálfleik á Kópavogsvelli þar sem áttust við Breiðablik og Þór/KA í meistaraflokki kvenna. Í rökstuðningi jafnréttis- og mannréttindaráðs segir að knattspyrnudeild Breiðabliks hafi lengi verið í fararbroddi í kvennaknattspyrnu og lagt áherslu á að auka veg og virðingu hennar. „Félagið vinnur eftir jafnréttisstefnu og telur jafnréttis- og mannréttindaráð Kópavogs að sú vinna hafi skilað góðum árangri,“ segir í rökstuðningi ráðsins. Þar segir einnig að félagið geri sömu kröfur til þjálfara drengjaflokka og þjálfara stúlknaflokka og að stúlkum í iðkendahópnum hafi fjölgað jafnt og þétt. „Árið 2012 varð Breiðablik Íslandsmeistari í öllum yngri flokkum kvenna. Félagið hefur lagt áherslu á að meistaraflokkar og yngri flokkar kvenna hafi sama aðbúnað og sömu æfingaaðstöðu og karlaflokkar.“ Þá sé að verða æ algengara að stúlkur og drengir æfi saman. „Félagið hefur jafnframt lagt sig fram um að auka aðsókn á leiki hjá kvennaliðinu og að veita áhorfendum sömu þjónustu og á heimaleikjum karlaliðsins.“ Þetta er í annað sinn á skömmum tíma sem knattspyrnudeild Breiðabliks fær viðurkenningu Kópavogsbæjar í jafnréttismálum.
Mest lesið Segir engan Frakka vera í franska landsliðinu Fótbolti Segja einn mann hafa séð um að aflétta banni Balogun Fótbolti Kærastan birti viðbjóðinn: Sörloth sagt að fremja sjálfsvíg eftir tapið á HM Fótbolti Sjáðu markasúpuna úr Bestu deildinni í gær Íslenski boltinn Goðsögn tekur við eftir vonbrigðin á HM Fótbolti McGregor entist aðeins í 69 sekúndur Sport „Er að fara vinna þennan gullskó og ég er að fara slá markametið“ Íslenski boltinn „Ég er svo lélegur í golfi“ Golf Langar að taka pásu frá landsliðinu Fótbolti Myndavélin hreyfðist ekki og því engin snerting Fótbolti Fleiri fréttir Valsmenn í vandræðum og óvænt félagaskipti United kaupir Andrey Santos frá Chelsea Segist ekki hafa verið meiddur fyrir 69 sekúndna bardagann Þórdís fer frá Þrótti til Breiðabliks Myndavélin hreyfðist ekki og því engin snerting Langar að taka pásu frá landsliðinu Freyr sáttur eftir draumabyrjun: „Finn fyrir gleði og létti“ Villa að stela Manzambi af Newcastle Völdu besta og efnilegasta leikmanninn ásamt úrvalsliði deildarinnar Sjáðu markasúpuna úr Bestu deildinni í gær Éderson ekki á leiðinni en Tielemans í viðræðum við United Ted Lasso-leikari spilaði sinn fyrsta leik í bandarísku B-deildinni Sveinn Búi snýr heim og semur við Hött Infantino spenntur fyrir því að fjölga liðum á HM í 64 Segir engan Frakka vera í franska landsliðinu Enska landsliðið þurft að ferðast mest allra liða Ánægður með frammistöðu heimsmeistaramótsins „Ég er svo lélegur í golfi“ Kærastan birti viðbjóðinn: Sörloth sagt að fremja sjálfsvíg eftir tapið á HM Dagskráin í dag: Umferðin klárast og allt gert upp í Stúkunni „Leikurinn sýnir að við erum að þróast í rétta átt“ „Þessi sigur sýnir hvað hópurinn er þéttur“ Liðin fjögur eftir sem FIFA vildi að gætu mæst í undanúrslitum Goðsögn tekur við eftir vonbrigðin á HM Lárus Orri: „Erum í bullandi fallbaráttu“ Uppgjörið: FH - Valur 2-0 | Gils gerði gæfumuninn í langþráðum sigri FH-liðsins Segja einn mann hafa séð um að aflétta banni Balogun Magnaður Sveinn Margeir: „Við eigum fullt inni“ Uppgjörið: KA - ÍA 3-2 | Víti í blálokin og loksins vann KA leik „Er að fara vinna þennan gullskó og ég er að fara slá markametið“ Sjá meira