Meintur læknadópsali sýknaður 22. október 2006 18:37
Héraðsdómur Reykjaness hefur sýknað mann af ákæru fyrir brot gegn lyfjalögum, en maðurinn var afhjúpaður af fréttaskýringaþættinum Kompási fyrir ólöglega sölu á svokölluðu læknadópi. Í þætti Kompáss sem sýndur var seint á síðasta ári voru tvær tálbeitur notaðar til þess að kaupa lyf hjá ákærða en þátturinn fjallaði um hversu auðvelt er að nálgast læknadóp á Íslandi. Fyrir 14 þúsund krónur fengu þau 10 Ritalin töflur, þrjár Rivotril, þrjár Contalgin og fimm töflur af valíum. Fréttastjóri Kompáss Jóhannes Kr. Kristjánsson afhenti lögreglu síðan lyfin og skýrði tilgang þáttarins. Eftir að lögregla framkvæmdi húsleit hjá manninum þar sem hún haldlagði ýmis lyf, var hinn meinti læknadópsali ákærður. Við yfirheyrslur sagðist maðurinn þekkja tálbeiturnar vel, þær hefðu komið á hans fund í þeim tilgangi að gera heimildarmynd um aðra tálbeituna sem á sér langa fíkniefnasögu. Ákærði hafi átt að leika læknadópsala í myndinni og hann hafi fengið töflurnar fyrir upptökuna svo málið liti raunverulegar út. Tálbeiturnar tvær staðfestu framburð ritstjóra Kompáss fyrir dómi en breyttu síðan framburði sínum eftir réttarhlé og samsinntu ákærða, að einungis hafi verið um sviðsetningu að ræða. Fyrir dómi héldu aðilar sama vitnisburði. Eftir stutt réttarhlé fyrir málflutning, óskuðu vitnin síðan eftir að breyta framburði sínum og gáfu nýja skýrslu þar sem þau samsinntu framburði ákærða að öllu leyti, málið hafi verið sviðsett vegna heimildarmyndar sem þau þrjú unnu að. Á þessu byggir dómurinn niðurstöðu sína og sýknar ákærða, auk þess að dæma að sakarkostnaður hans skuli greiddur úr ríkissjóði. Fréttastjóri Kompáss var ekki kallaður til sem vitni í málinu.
Fréttir Mest lesið Ivanka Trump og Jared Kushner á Íslandi Innlent Telur „gusumeistara“ hafa sölsað undir sig eign borgarinnar Innlent „Í guðanna bænum ekki apa eftir þessu“ Innlent Skerðing á opnun í frístund verði afturkölluð Innlent Handtekinn af sérsveitarmönnum undir Esjunni Innlent Bjóða ferðamönnum að gista í súrheysturni Innlent Þessi sóttu um starf upplýsingafulltrúa Innlent Rekja hundruð dauðsfalla á ári til stærri bíla Erlent Madsen neitað um leyfi til að gifta sig Erlent Vilja semja aftur um bensínstöðalóðir í borginni Innlent Fleiri fréttir Telur „gusumeistara“ hafa sölsað undir sig eign borgarinnar Fella þurfi niður tungumálaþröskulda og auka traust á kerfinu Brottfararstöð þurfi að hafa pláss fyrir þrjátíu manns Áhyggjuefni að markmið kjarasamninga sé ekki að nást Fiskverð í hæstu hæðum og strandveiðimenn brosa allan hringinn Verðbólgan eykst þvert á spár og fiskverð í hæstu hæðum „Í guðanna bænum ekki apa eftir þessu“ Nöfn úr rannsókn sáust í kynningarmyndbandi Ivanka Trump og Jared Kushner á Íslandi Þessi sóttu um starf upplýsingafulltrúa Fær ekki bætur fyrir sóttkví vegna Covid-19 Telur gagnrýni sveitarfélaganna ekki eiga við rök að styðjast Neitaði að yfirgefa strætisvagninn Vilja semja aftur um bensínstöðalóðir í borginni Skerðing á opnun í frístund verði afturkölluð Fræddust um daglegt líf blindra og hreyfihamlaðra Bjóða ferðamönnum að gista í súrheysturni „Miðað við þessi orð þá hef ég miklar áhyggjur“ Stutt stopp hjá gjaldfrjálsum Strætó Stúlkan er fundin Boðar frekari niðurskurð Borgarstarfsmenn taka pokann sinn og kapphlaup við tímann í Venesúela Kastaðist af hjólinu þegar ekið var á hann „Erfiður dagur í ráðhúsinu í dag“ Handtekinn af sérsveitarmönnum undir Esjunni Hópuppsögn í borginni: Störfum fækkar um 40 prósent Vara við netsvikum í nafni „netglæpalögreglunnar“ Fimm vilja stýra HSA Vöruðu við að risaskjálfti væri í vændum Upplýsingafulltrúum sagt upp og mannréttindaskrifstofa lögð niður Sjá meira