Trukkur keyrði á Jóhönnu Guðrúnu í miðbæ Moskvu 7. maí 2009 08:15 Árekstur í moskvu María Björk og Jóhanna Guðrún sluppu ómeiddar frá árekstri í miðbæ Moskvu þegar pirraður Rússi á jeppa keyrði aftan á bíl þeirra fyrir utan sushi-stað. Hér er Jóhanna með Yesmine Olsson en þær fara saman í ræktina á hverjum degi, þrátt fyrir að það kosti tvö þúsund krónur í hvert skipti. Fréttablaðið/Alma „
Við vorum bara á leiðinni á japanskt veitingahús í miðbænum og ætluðum að fá okkur sushi. Þegar við vorum um það bil að stíga út úr bílnum kom bara einhver trukkur og keyrði aftan á okkur,“ segir María Björk, umboðsmaður Jóhönnu Guðrúnar, Eurovison-stjörnu Íslendinga. Í bílnum voru auk Maríu og Jóhönnu, fararstjóri og bílstjóri en allir sluppu ómeiddir frá atvikinu. Bílstjórinn umræddi stakk hins vegar af og hefur ekkert til hans spurst. María bætir því að þær stöllur hafi orðið að fá sér eitthvað gott í gogginn enda sé rússneskur matur ekki alveg eftir þeirra höfði. Hins vegar hefur allt gengið að mestu leyti vel í þá fjóra daga sem Eurovision-föruneytið hefur dvalist í Moskvu. Jóhanna hefur vakið mikla athygli og bæði blaðamenn og ljósmyndarar eru áhugasamir um þennan unga söngfugl frá Íslandi. Einhverjir hnökrar eru hér og þar því samkvæmt þéttskipulagðri dagskrá liðsstjórans Jónatans Garðarssonar var gert ráð fyrir því að hópurinn gæti losað um stressið og álagið með því að grípa í lóðin í líkamsræktarsal Cosmos-hótelsins en þar er aðsetur Eurovision-hópsins. Það gleymdist aftur á móti að taka með í reikninginn að borga þarf sérstaklega fyrir hvern og einn dag, litlar tvö þúsund krónur. Og kreppuþjáðir Íslendingar verða að hugsa um hverja einustu krónu. María segir þetta vissulega svekkjandi. „Jóhanna og Yesmine Olsson nýta sér salinn á hverjum degi,“ segir María en ekki er útilokað að Yesmine taki restina af hópnum í útileikfimi að hætti Bootcamp í garði sem er í nágrenni hótelsins. „Já, það ætla ég svo sannarlega að vona að hún geri enda nauðsynlegt fyrir þá sem eru á sviðinu með Jóhönnu að vera í góðu formi.“ María fer ekkert of fögrum orðum um hótelið en viðurkennir að miðað við mörg önnur hús í Moskvu þá sé það ekkert slor. „Þetta hefur þótt fínt fyrir svona þrjátíu árum, enginn Hilton-stíll yfir þessu en voðalega dúllulegt, með blómamunstrum á rúmteppunum,“ segir María og virðist hafa gaman af. Jóhönnu hefur annars gengið vel að vekja athygli á sjálfri sér. Sem skiptir miklu máli þegar í keppnina er komið. Hún var meðal annars í viðtali við rússneska ríkissjónvarpið í gær, fór á þjóðminjasafnið í höfuðborginni, klæddi sig í þarlendan þjóðbúning og söng bút úr laginu Is it True? á rússnesku. „Þetta verður í fréttunum á föstudag og verður síðan notað til að kynna lagið.“freyrgigja@frettabladid.is
Mest lesið „Erum enn að ná utan um allt sem gerðist“ Lífið „Þegar þið eignist ykkar fyrsta barn, má ég þá fá það?“ Lífið Allir og amma þeirra á Ítalíu Lífið Fréttatía vikunnar: EBU, aftaka og Love Island Lífið Landslið íslenskra söngvara syngur afmælislag Bylgjunnar Tónlist „Klukkan er fimm einhvers staðar“ Lífið Snæddi með furstanum af Mónakó Lífið Kyssti ekki Maguire heldur tottaði rafrettu Lífið Málarameistari afhjúpar algengustu mistökin í sumarverkefnunum Lífið samstarf Brúðkaupshátíð Taylor Swift og Travis Kelce hafin Lífið Fleiri fréttir Eins og að vera með kláða sem hverfur aldrei „Erum enn að ná utan um allt sem gerðist“ Fréttatía vikunnar: EBU, aftaka og Love Island „Klukkan er fimm einhvers staðar“ „Þegar þið eignist ykkar fyrsta barn, má ég þá fá það?“ Snæddi með furstanum af Mónakó Kyssti ekki Maguire heldur tottaði rafrettu Allir og amma þeirra á Ítalíu Brúðkaupshátíð Taylor Swift og Travis Kelce hafin Bubbi, Herra og þeir allra rauðhærðustu á Írskum dögum Helga Þóra og Óli Sig ástfangin á Grikklandi Muniz skilinn Tveggja ára dóttir Nöru Smith með krabbamein Hvað veistu um… götur í Reykjavík sem byrja á S? „Mér var sagt að segja ekki eitt fokking orð“ Weinstein á spítala eftir hjartabilun Segir Depp hafa sturlast úr afbrýðissemi Kanada tekur þátt í Eurovision Erna Mist og Þorleifur Örn eignuðust son Leikarapar selur í 101 Grætti nánast alla í athöfninni „Fór fram úr mínum ýktustu björtustu vonum“ Logi fór á skeljarnar við Como-vatn Endaði einn í Færeyjum í sögulegri steggjun Mormónastjarna kemur út úr skápnum Fann ástina og tók sénsinn í New York Lést af völdum alnæmis Alþjóðlegi drullumallsdagurinn: „Við viljum ekki fara heim af því að það er svo skemmtilegt“ Fjarlægður úr Love Island vegna tengsla sinna við stunguárás „Þetta eru pjöllu-klútar“ Sjá meira