Sumargleðin mætir Sigur Rós 7. maí 2009 07:00 Hatrömm barátta Sumargleðin með Hemma Gunn, Þorgeir Ástvalds og Ómar Ragnarsson innanborðs etur kappi við Sigur Rós í opnunarleik Popppunkts. „
Þetta er ekki staðfest en það eru allar líkur á því að þetta gangi eftir,“ segir Felix Bergsson, annar af stjórnendum Popppunkts. Opnunarleikur þessar sívinsælu spurningakeppni tónlistarmanna ætti að vera sögulegur í meira lagi því flest bendir til að hann verði milli Sumargleðinnar, með þá Hemma Gunn, Þorgeir Ástvalds og Ómar Ragnarsson innanborðs, og súperstjarnanna í Sigur Rós. Sigur Rós hefur aldrei tekið þátt í Popppunkti, þeir félagar hafa verið uppteknir við tónleikaferðalög um heiminn þegar upptökur hafa farið fram á þættinum. Felix skoraði á Sigur Rós í samtali við Fréttablaðið fyrir skemmstu að láta slag standa í ár og drengirnir virðast hafa tekið þeirri áskorun. Felix viðurkennir aftur á móti að fjögurra manna hljómsveitir séu alltaf erfiðastar viðureignar því rígur getur komið upp á milli manna um hvaða þrír meðlimir eigi að vera sverð, skjöldur og sómi sveitarinnar. Undirbúningur er nú í fullum gangi og fjölmargir hafa lýst yfir áhuga sínum á að fá að keppa um þennan eftirsóknarverða titil: gáfaðasta band landsins. „Það vilja bara allir vera með en við erum alveg staðráðnir í því að búa til nýja seríu þar sem nýjar sveitir fá að spreyta sig,“ segir Felix. Of langt mál færi í að telja upp allar þær sveitir sem koma við sögu í Popppunkti ársins en meðal þeirra helstu má nefna Baggalút, Jeff Who?, Múm, Veðurguðina, Buffið, Ljótu hálfvitana, Hvanndalsbræður og Sprengjuhöllina. „Og svo má ekki gleyma Eurobandinu og Elektra,“ skýtur Felix inn í.- fgg Ný andlit Felix Bergsson boðar ný andlit í Popppunkti.
Mest lesið Sunneva Einars áfram langtekjuhæsti áhrifavaldurinn Lífið Tekjuhæstu listamennirnir árið 2025 Lífið Stórglæsilegt Sigvaldahús á sölu Lífið Nicole er fyrir norðan Lífið Hemma Gunn-stytta og heitur pottur í 192 milljóna króna raðhúsi Lífið Lofar að minnast Panettiere ávallt af virðingu Lífið Galvaskt gelludjamm hjá Guggu og guggunum Lífið „Ógleymanlegt söngævintýri“ með Nicole Kidman Lífið Sannkallað stjörnubrúðkaup Katrínar Tönju og Brooks Lífið Hvað veistu um... frjálsar íþróttir? Lífið Fleiri fréttir Sannkallað stjörnubrúðkaup Katrínar Tönju og Brooks Tekjuhæstu listamennirnir árið 2025 Sunneva Einars áfram langtekjuhæsti áhrifavaldurinn „Ógleymanlegt söngævintýri“ með Nicole Kidman Prjóna á klúbbnum án þess að prjóna yfir sig Hemma Gunn-stytta og heitur pottur í 192 milljóna króna raðhúsi Verjendur Davis segja ekkert að marka skjólstæðing sinn Lofar að minnast Panettiere ávallt af virðingu Stórglæsilegt Sigvaldahús á sölu Leikkonan var úrskurðuð látin á vettvangi Hvað veistu um... frjálsar íþróttir? Galvaskt gelludjamm hjá Guggu og guggunum Nicole er fyrir norðan Egill Heiðar og Kittý selja Garðabæjarslotið Helstu samsæriskenningarnar um Evrópusambandið „Ein miðaldra kona að tala um að hún hefði viljað mæta“ Barnalán hjá Brynju Dan Herra og frú Crivello hamingjusöm hjón Svana á tímamótum og selur slotið Auðunn tilkynnir nýja kærustu Salka Sól tekur við af óléttri Jóhönnu Guðrúnu Stjörnulífið: Stjörnur í snípstuttu Leikkonan Hayden Panettiere er látin Eliza Reid var meðal gesta í brúðkaupinu Þórdís Elva er gengin út Efna til söfnunar í minningu Hennings Dorrit vill biðja eigendurna afsökunar Hunter Schafer alsæl eftir Íslandsför Krakkatía vikunnar: Tinni, flekar og stór augu Þórdís Kolbrún fékk hlýjar móttökur Sjá meira