Lífið

Glímukappi myrðir eiginkonu sína og barn

Sigríður Elva Vilhjálmsdóttir skrifar
Glímukappinn Chris Benoit kyrkti konu sína, kæfði sjö ára son sinn og kom biblíu fyrir við hlið líka þeirra áður en hann hengdi sig í snúru í lyftingatæki á heimili sínu í Fayettville í Georgíu. Benoit var fertugur kanadískur ríkisborgari, og þekktur sem ,,The Canadian Crippler" í fjölbragðaglímuheiminum.

Konu sína, sem fannst bundin á ökklum og úlnliðum, er hann talinn hafa myrt á laugardaginn, soninn á sunnudag, og loks framið sjálfsmorð á mánudaginn, eftir að hafa sent kollegum sínum SMS skilaboð um hvar hann væri staddur.

 

Lögreglumenn fundu stera á heimilinu, og er verið að kanna hvort að þeir hafi átt þátt í hegðun Benoits, en steraneysla getur valdið ofsóknarbrjálæði árásargirni og þunglyndi.

Benoit skildi ekki eftir sig neitt bréf sem varpað gæti ljósi á ástæðuna fyrir morðunum. ,,Ég skil ekki hvernig nokkur getur myrt 7 ára barn" sagði Scott Ballard, saksóknari í Georgíu.

Glímukappinn var skær stjarna í glímuheiminum, og var þekktur fyrir fjölskylduföður-ímynd sína. Eiginkona hans, Nancy, vann sem sviðsstjóri og gekk undir nafninu ,,Woman" eða konan.

Þau giftu sig árið 2000. Þremur árum seinna sótti Nancy um skilnað, og bar við heimilisofbeldi. Hún fór einnig fram á nálgunarbann gagnvart eiginmanninum og sagði að hann hefði ógnað sér og brotið húsgöngn á heimili þeirra. Þá sagðist hún óttast um öryggi sitt og barns síns.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.