Deilur forstjóra við ráðherra valda börnum skaða Karen Kjartansdóttir skrifar 7. apríl 2010 18:30 Álfheiður Ingadóttir og Steingrímur Ari Arason.
Deilur heilbrigðisráðherra og forstjóra Sjúkratrygginga valda því að aðstandendur barna sem eru með fæðingargalla eða hafa lent í slysi sem kallar á mikinn tannlæknakostnað fá ekki endurgreiðslu. Þau segja málið bitna illilega á börnum. Kostnaðurinn geti munið milljónum og komið getið fyrir að fjölskyldur standi ekki undir greiðslum af slíkum upphæðum. Það geti orðið og hafi orðið til þess að börn verða af þjónustu sem þau þurfa á að halda. Aðstandendafélag þessara barna, Breið bros, hefur lengi barist fyrir fullri endurgreiðslu frá Sjúkratryggingum. Eftir áralanga baráttu héldu félagsmenn að með nýrri reglugerð ráðherra yrði komið til móts við þá vegna kostnaðar en reglugerðin gerði ráð fyrir allt að 95 prósenta endurgreiðslu og var árlegur kostnaður hins opinbera vegna þess áætluð um 140 milljónir króna. Málið virðist þó komið í mikinn hnút vegna núnings Sjúkratrygginga og Heilbrigðisráðuneytis sem mikið hefur verið fjallað um í fjölmiðlum. Andrés Ævar Grétarsson og Ásta Sóley Sturludóttir, eru foreldrar sjö ára drengs með skarð í vör sem brátt mun þurfa að gangast undir miklar tannlækningar. Þau segja þá stöðu sem upp er komin sár vonbrigði, málið snúist ekki aðeins um deilurnar heldur framtíð barna með fæðingargalla, sem þurfi á mikilli og dýrri þjónustu tannlækna að halda, en nýrri reglugerð var ætlað að rétta hlut þeirra. Þau búast við að þurfa reiða fram um þrjá milljónir vegna tannlæknaþjónustu fyrir son sinn. Þá peninga eigi þau ekki tiltæka og telja líklegt að þau verði að skera niður í talþjálfun sonar síns í staðinn en sú þjálfun er honum þó mjög mikilvæg en mjög kostnaðarsöm. Segja þau hvern tíma kosta um 7000 krónur en aðeins fáist 2000 krónur endurgreiddar.
Mest lesið Eldur í Elliðaárdal Innlent Banamaður Bryndísar Klöru kominn á Vernd Innlent Dýraverndunarsinni handtekinn í tengslum við minka- og svínabúsmálið Innlent „Ég átta mig á því að smekkleysið hefur sigrað“ Innlent Nýjar reglur í lauginni og Björn rekinn á dyr Innlent Kenndi arabískum sveppasölumönnum um að hleypa af Innlent Tollum hótað vegna hvalveiða sem verða bannaðar Innlent Fundu blóðuga exi og kaðal eftir að kærastinn var handtekinn Innlent Grafalvarlegt að banna heila atvinnugrein Innlent Lifði af bílslys en missti besta vin sinn Innlent Fleiri fréttir Snúist um dómgreind frekar en gervigreind Fannst eftir rúma tveggja sólarhringa leit: „Hún er eitthvað óvenjuleg þessi hryssa“ Þyrlurnar sinntu útkalli úti á ballarhafi annan daginn í röð Eldur í Elliðaárdal Dómur um ólögmæt bílastæðagjöld gæti verið fordæmisgefandi Samkomulag Tækniskólans og Hafnarfjarðar út um þúfur Unnið að uppfærslu umferðarljósa Mannauðsstjórinn skipaður forstjóri Heilbrigðisstofnunar Austurlands Grafalvarlegt að banna heila atvinnugrein Höfnuðu kraðaki raka um meint ólögmæti atkvæðagreiðslunnar Vill stórminnka Rúv og hafnar tengingu Gísla við fjarhægri Dýraverndunarsinni handtekinn í tengslum við minka- og svínabúsmálið Greip um eistu lögreglumanns „Takmörkuð sólmyrkvaáhrif“ Íþróttafélög fá að beina frekari upplýsingum að börnum Tíu þúsund börn búi á heimilum undir lágtekjumörkum Kominn á Vernd tveimur árum eftir morðið vegna túlkunaratriðis „Það þarf að hreinsa aðeins loftið“ Hóta tollum vegna hvalveiða og hægri stjórn virðist fallin Banamaður Bryndísar Klöru kominn á Vernd Lýsa vonbrigðum með framgöngu Icelandair í miðri atkvæðagreiðslu Tveir hópferðabílar skullu saman á Suðurlandsbraut Frakkar og Litáar endurskoða Ríkisendurskoðun Lifði af bílslys en missti besta vin sinn Tollum hótað vegna hvalveiða sem verða bannaðar Útkall vegna hópslagsmála í bílakjallara „Ég átta mig á því að smekkleysið hefur sigrað“ Þungt högg fyrir ferðaþjónustu á Austurlandi Kenndi arabískum sveppasölumönnum um að hleypa af Þriðjungur borgarbúa vill skipta um ferðamáta Sjá meira