Framsóknarmenn missaga í Íraksmáli 7. janúar 2005 00:01
Jónína Bjartmarz, fulltrúi Framsóknarflokksins í utanríkismálanefnd Alþingis, fullyrðir að stuðningur Íslands við innrásina í Írak hafi aldrei verið ræddur í utanríkismálanefnd. Formaður Framsóknarflokksins staðhæfði í fjórgang í sjónvarpsviðtali fyrir mánuði að málið hefði verið rætt í nefndinni. Sú staðreynd að 84 prósent íslensku þjóðarinnar eru andvíg því að Ísland sé á lista hinna staðföstu og viljugu þjóða sem styðja innrás Bandaríkjamanna og Breta í Írak var rædd í Íslandi í dag eftir fréttir í gær. Þar upplýsti Jónína Bjartmarz, sem situr í utanríkismálanefnd, að málið hefði aldrei verið rætt í nefndinni. Þetta er í hróplegu ósamræmi við orð Halldórs Ásgrímssonar í Kastljósi Ríkissjónvarpsins sléttum mánuði fyrr. Þar fullyrti hann í fjórgang að málið hefði verið rætt í utanríkismálanefnd, fyrst þegar hann var spurður hverjir hefðu tekið þá ákvörðun að styðja innrásina, við hvaða aðstæður og á hvaða forsendum. Þá svaraði forsætisráðherra: „Það liggur náttúrulega alveg ljóst fyrir að þetta mál var margrætt á Alþingi. Það var rætt í utanríkismálanefnd, það var rætt í þinginu en að lokum var það að sjálfsögðu utanríkisráðherra og forsætisráðherra sem gerðu tillögu í þessum efnum.“ Þá er spurt hvort ekki hefði verið rétt að standa að þessari ákvörðun með lögformlegum hætti. Þá svarar forsætisráðherra: „Ég meina, sko, þetta var margrætt á Alþingi, þetta var margrætt í utanríkismálanefnd.“ Þá er spurt hvort ekki þurfi að ræða þetta með formlegum hætti og Halldór svarar: „Jú það var rætt á Alþingi og það var hérna rætt í utanríkismálanefnd.“ Að endingu er spurt hvort það hafi verið hann og Davíð Oddson sem tóku ákvörðunina. Og Halldór svarar: „Við tökum að sjálfsögðu af skarið. Eftir að hafa rætt við ýmsa aðila um þetta mál, þar með rætt það í utanríkismálanefnd og rætt margoft, hefur málið verið rætt á Alþingi.“ Af svörum Jónínu í gær og Halldórs fyrir mánuði er ekki hægt að ráða nema eitt; þau geta ekki bæði verið að segja satt.
Fréttir Innlent Mest lesið Komið að ögurstundu Erlent Níu ára drengur læstur í bíl föður síns í Frakklandi frá árinu 2024 Erlent Tilkynna málið til lögreglu: Flugstjórinn í sínu síðasta flugi Innlent Maður hífður upp úr Ölfusá Innlent Trump „alveg sama“ um hvort samkomulag náist við Íran Erlent Sjö á sjúkrahús eftir árekstur á Mosfellsheiði Innlent Farþegaþota í útsýnisflugi um hundrað metrum yfir Heimaey Innlent Má búast við mikilli úrkomu á Austfjörðum Veður Gæsluvarðhaldskröfu yfir Írisi hafnað Innlent Fjórar í valdastöðum á fréttamynd ársins Innlent Fleiri fréttir Sjö gistu í fangageymslu lögreglu í morgun Tilkynna málið til lögreglu: Flugstjórinn í sínu síðasta flugi Sjö á sjúkrahús eftir árekstur á Mosfellsheiði Maður hífður upp úr Ölfusá Farþegaþota í útsýnisflugi um hundrað metrum yfir Heimaey Ellefu framboðslistar á kjörseðli borgarbúa í vor Fjórar í valdastöðum á fréttamynd ársins Maður stunginn í heimahúsi á Akureyri Hafi áhrif á vísitöluna en vonandi væntingar líka Aðgerðirnar ekki til þess fallnar að koma í veg fyrir að forsenduákvæðið virkist Annar hvalrekinn á nokkrum dögum Fyrir þinginu að breyta svarmöguleikum þó enginn vafi leiki á umsóknarstöðu Til skoðunar að breyta svarmöguleikum á kjörseðli og sprenging í stofnun bókaklúbba Gæsluvarðhaldskröfu yfir Írisi hafnað Ók á tæplega tvöföldum leyfilegum hraða Spá enn vaxtahækkun í maí Gapandi búrhval rak á land: „Heljarinnar skepna“ Verzló hreppti hljóðnemann eftir sigur gegn MR Landskjörstjórn telur spurningu Þorgerðar gildishlaðna Góðan daginn býður góðan dag Óvæntur ríkisstjórnarfundur boðaður að kvöldi Sólheimar segja upp þjónustusamningnum „Þegar allt þrýtur þá ganga gerendur lengra og lengra“ Kristrún kynnir planið fyrir sveitarstjórnarkosningarnar Barátta við verðbólgu, eltihrellir og brugðist við breyttri Reynisfjöru Engir glæpir á bak við aukið sírenuvæl í borginni Bæjarfulltrúa í Grindavík misboðið: „Sleppið af okkur klónum“ Gabríel Douane í síbrotagæslu: Einn handtekinna vegna líkamsárásar í mars Bæjarstjóri Kópavogs lýsir yfir sárum vonbrigðum með efnahagsáætlun ríkisstjórnarinnar Börn flytji ekki til Grindavíkur á meðan óvissa varir Sjá meira