Lífið

Dramatísk frá­sögn Chris Pratt úr Ís­lands­reisu virðist úr lausu lofti gripin

Kristín Ólafsdóttir skrifar
Chris Pratt dvaldi á Íslandi við tökur á kvikmyndinn The Tomorrow War í fyrra og virðist hafa fengið nokkuð óáreiðanlegar upplýsingar um tökustaðinn.
Chris Pratt dvaldi á Íslandi við tökur á kvikmyndinn The Tomorrow War í fyrra og virðist hafa fengið nokkuð óáreiðanlegar upplýsingar um tökustaðinn. Vísir/Getty

Lögregla á Suðurlandi kannast ekki við fullyrðingar bandaríska Hollywoodleikarans Chris Pratt um að lík karls og konu hafi fundist í jökulsprungu á Íslandi rétt áður en hann kom hingað til lands í fyrra. Pratt sagði söguna í þætti spjallþáttadrottningarinnar Ellen DeGeneres í vikunni.

Pratt var hér á landi í nóvember í fyrra við tökur á kvikmyndinni The Tomorrow War. Hann greindi skilmerkilega frá Íslandsförinni á samfélagsmiðlum og miðað við færslur hans þar virtist hann vera staddur í Jöklaseli við Skálafellsjökull.

Fullkomlega varðveittir elskendur ofan í holu

Íslandsför Pratts bar á góma í spjallþætti Ellen DeGeneres nú í vikunni. Brot úr viðtalinu birtist á YouTube í gær en þar segir Pratt dramatíska sögu frá tökustað á íslenskum jökli, sem þó er ekki nafngreindur í viðtalinu.

Pratt byrjar á því að lýsa því að aðstæður til kvikmyndaframleiðslu hafi verið erfiðar á jöklinum, sérstaklega að vetri til „þegar dagurinn er fjórar klukkustundir.“

Sjá einnig: Myndaveisla frá dvöl Chris Pratt á Skálafellsjökli

„En þegar við komum upp á jökulinn var nýbúið að finna, og þetta er klikkað, […] par í jökulsprungu. Þau höfðu fallið í hana og verið ofan í henni í rúm áttatíu ár. Og því miður höfðu þau það ekki af. Og þau voru fullkomlega varðveitt í fjallgönguklæðnaði sínum,“ sagði Pratt.

„Þau voru með búnað sinn, vistir, bréf. Þau voru elskendur og duttu ofan í holu og týndust. Og það var nýbúið að finna þau.“

DeGeneres virtist þykja mikið til frásagnarinnar koma, sagði hana „klikkaða“, og Pratt svaraði því til að sem betur fer hefði enginn úr tökuliði hans fallið ofan í sprungu. Viðtalið má sjá í spilaranum hér að neðan.

Engin sambærileg mál í umdæminu

Oddur Árnason yfirlögregluþjónn á Suðurlandi, kannast ekki við að mál af því tagi sem Pratt lýsti í þætti Ellenar hafi komið inn á borð lögreglu, hvorki á Skálafellsjökli né annars staðar í umdæminu. Frásögn Pratts virðist því úr lausu lofti gripin.

Sambærileg mál hafa þó komið upp á erlendri grundu. Lík svissneskra hjóna fundust á jökli í Sviss sumarið 2017. Hjónin hurfu á jöklinum árið 1942 og höfðu því verið týnd í 75 ár.

Þá hafa ferðalangar einnig týnst á íslenskum jöklum, þó að ekkert málanna komi heim og saman við frásögn Pratts. Tveir breskir háskólanemar týndust á Skaftafellsjökli árið 1953 en fundust ekki þrátt fyrir leit. Leifar af búnaði þeirra fundust á jöklinum sumarið 2006.

Tveir þýskir ferðamenn hurfu á göngu á Svínafellsjökli í ágúst 2007. Leit að þeim var formlega hætt í lok sama mánaðar. Þremur árum síðar fannst klifurlína á fáfarinni leið upp vesturhlið Hvannadalshnjúk, og upp komu vangaveltur um að hún kynni að vera eftir þýsku ferðamennina tvo. Þeir hafa þó aldrei fundist.


Tengdar fréttir

Chris Pratt á Skálafellsjökli

Pratt er við tökur á myndinni The Tomorrow War og bregður á leik með fylgjendum sínum á Instagram.

Myndaveisla frá dvöl Chris Pratt á Skálafellsjökli

Bandaríski Hollywood leikarinn Chris Pratt kom til landsins fyrir nokkrum dögum en Pratt er við tökur á myndinni The Tomorrow War og bregður á leik með fylgjendum sínum á Instagram, sem telja 27 milljónir, og leyfir þeim að fylgjast með dvölinni hér á landi.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×