Innlent

Mikið tjón víða um land eftir lægðina

Jóhann K. Jóhannsson skrifar
Björgunarsveitarmenn að störfum í dag.
Björgunarsveitarmenn að störfum í dag. Vísir/vilhelm

Gríðarlegt tjón varð víða þegar ein versta óveðurslægð síðustu ára gekk yfir landið. Maður slasaðist þegar þakplata fauk á hann. Bílar skemmdust, rúður brotnuðu og klæðningar á byggingum fuku. Þá sló rafmagni út þegar rafmagnsstaurar brotnuðu undan veðurhamnum.

Óveðrið sem gekk yfir landið í nótt og í morgun er smám saman að ganga niður. Óhætt er að segja að fólk hafi tekið tilkynningum almannavarna og Veðurstofunnar vel því á meðan versti veðurhamurinn gekk yfir var fólk ekki á ferli, enda fyrirtæki, stofnanir og félagasamtök búin að gera ráðstafanir. Þá var vegum lokað og almenningssamgöngur í lofti og á láði felldar niður.

Klukkan fimm í morgun voru viðbragðsaðilar víða farnir að sinna óveðursútköllum og Samhæfingarmiðstöð almannavarna, auk aðgerðarstjórna stýrðu aðgerðum.

Verkefni björgunarfólks í mörgum tilfellum mjög stór

Miklar skemmdir urðu í Vík í Mýrdal. Rafmagnsstaurar í sex staurastæðum brotnuðu undan veðurhamnum og mun viðgerð taka einhvern tíma. Þá var fjöldahjálparstöð opnuð á staðnum fyrir erlenda ferðamenn sem voru strandaglópar. Að öðru leiti er raforkukerfið komið í lag utan Prestbakkalínu við Hornafjörð sem verður ekki tekin í notkun strax vegna eldingarhættu.

Björgunarsveitarmenn undirbúa sig fyrir aðgerðir.Vísir/Vilhelm

 

Stærsta verkefnið í Vestmannaeyjum var þegar þak fauk af húsi í heilu lagi og í morgun þegar hinn sögufrægi vélbátur, Blátindur sökk í höfninni. Þá skemmdust að minnsta kosti tvö fjárhús við Hvolsvöll mjög illa. Á Egilsstöðum var mjög hvasst og þungfært.

Í Hvammsvík í Hvalfirði slasaðist maður þegar þakplata fauk á hann. Ekki þótti óhætt að senda sjúkrabíl á vettvang vegna fárviðris á svæðinu og ferjaði björgunarsveitin hann til byggða. Hann er ekki alvarlega slasaður.

Það var einnig í nægu að snúast hjá viðbragðsaðilum á höfuðborgarsvæðinu þar sem flest útköll voru óveðurstengd og bárust á sjötta hundrað símtala til Neyðarlínunnar fyrir hádegi.

Eins og sjá má eru miklar skemmdir á þakinu.Vísir/Jóhann K.

Þak fór af af í nær heilu lagi á Kjalarnesi

Mestar urðu þó skemmdirnar í efri byggðum og nágrannasveitarfélögum við höfuðborgarsvæðið. Tjón er víða mjög mikið á Kjalarnesi. Á fjölbýlishúsi fór þak af íbúð í nær heilu lagi.

„Í svona tilfellum þá gerum við ekki neitt. Við komumst ekki upp á þak,“ sagði Þórður Bogason, varðstjóri hjá Slökkviliði höfuðborgarsvæðisins og björgunarsveitarmaður í björgunarsveitinni Kjölur á Kjalarnesi.

Mikið tjón víða?

„Já það er bara töluvert mikið tjón. Mikið af gluggum og öðru slíku sem hefur farið,“ sagði Þórður.

Í húsgarði tókst garðskúr á loft.

„Það lyftist þakið af og við þurfum að bera allt dótið inn og fergja þetta niður. Mikið tjón? Nei, þetta eru bara munir,“ sagði Ástríður Gísladóttir, íbúi á Kjalarnesi.

Heildartjón verður ekki fyllilega ljós fyrr en veðrið er gengið alveg niður og eftir að fólk hefur hugað að eigum sínum.


Tengdar fréttir

Víðtækt rafmagnsleysi vegna óveðursins

Óveðrið hefur sett raforkukerfi landsins úr skorðum. Þannig liggja nokkrar línur Landsnets úti og yfir 5.700 notendur Rarik hafa orðið fyrir barðinu á rafmagnstruflunum. Erfitt hefur reynst fyrir vinnuflokka Rarik að athafna sig vegna veðurhamsins.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×