Vidal sá til þess að Börsungar eiga enn von

Anton Ingi Leifsson skrifar
Vidal tryggði Börsungum stigin þrjú í dag.
Vidal tryggði Börsungum stigin þrjú í dag. EPA-EFE/R. GARCIA

Barcelona vann 1-0 sigur á Real Valladolid í spænsku úrvalsdeildinni og heldur þar með í vonina um að ná Real Madrid á toppi spænsku deildarinnar.

Eina mark leiksins skoraði Arturo Vidal með góðu skoti úr þröngu færieftir sendingu hins argentíska Lionel Messi á 15. mínútu. Var þetta 8. deildarmark Vidal á tímabilinu.

Leikurinn í rólegri kantinum og ljóst að leikmenn beggja liða orðnir vel þreyttir en leikjaálagið hefur verið gífurlegt síðan spænska úrvalsdeildin hófst að nýju.

Börsungar eru nú aðeins stigi á eftir Real sem á leik til góða á mánudag. Börsungar hafa leikið 36 leiki af 38 og eru með 79 stig. Real er á toppnum með 80 stig eftir 35 leiki.

Bein lýsing

Leikirnir






    Fleiri fréttir

    Sjá meira