Madrídingar með níu fingur á titlinum eftir sigur

Ísak Hallmundarson skrifar
Madrídingar fagna marki í kvöld.
Madrídingar fagna marki í kvöld. getty/Berengui

Real Madrid er ansi nálægt því að verða spænskur meistari í fótbolta eftir 2-0 sigur á Alaves í kvöld.

Karim Benzema skoraði fyrsta mark Madrídinga úr vítaspyrnu á 11. mínútu leiksins. Staðan 1-0 í hálfleik fyrir Real Madrid. Marco Asensio tvöfaldaði síðan forystuna snemma síðari hálfleiks, á 50. mínútu, og þar við sat. Lokatölur í Madrid í kvöld 2-0.

Eftir sigurinn er Real á toppnum, fjórum stigum fyrir ofan Barcelona þegar einungis þrjár umferðir eru eftir af mótinu. Real þarf því að vinna tvo af síðustu þremur leikjunum til að verða meistari. 

Alaves er í 17. sæti, þremur stigum fyrir ofan fallsæti.

Bein lýsing

Leikirnir






    Fleiri fréttir

    Sjá meira