Þorskurinn í góðri uppsveiflu 11. september 2009 04:30 Jón Kristjánsson
Jón Kristjánsson fiskifræðingur furðar sig á málflutningi Hjalta í Jakobsstovu, forstjóra færeysku hafrannsóknastofnunarinnar, á ráðstefnu um fiskveiðistjórnun sem Hagfræðistofnun Háskóla Íslands gekkst fyrir í liðinni viku. Á ráðstefnunni, sem Jón kallar sjálfstyrkingarráðstefnu kvótasinna, hélt Hjalti því fram að sóknarmarkskerfi þeirra Færeyinga hafi reynst illa og sérstaklega sæist það á bágu ástandi mikilvægra nytjastofna, ekki síst þorsks. Jón hefur aflað gagna úr togararalli þeirra Færeyinga þar sem skýrt kemur fram í bráðabirgðaskýrslu að þorskstofninn sé þvert á móti í uppsveiflu og ungfiskur sé að ryðjast inn í stofninn. Nýliðun sé því afar góð, þvert á það sem Hjalti heldur fram. Hjalti í Jakobsstovu „Hjalti hefur verið í andstöðu við sóknarmarkskerfið og kannski vegna þess að ekki hefur verið farið að ráðgjöf hans um mikinn niðurskurð,“ segir Jón. „Hafró í Færeyjum gefur alltaf ráðgjöf eins og þeir væru í kvótakerfi en ekki í blönduðum botnfiskveiðum, eða veiðiráðgjöf fyrir hverja tegund fyrir sig. Þeir eru pirraðir vegna þess að þeim hefur ekki verið hlýtt og hrakfallaspár þeirra þar með afsannaðar. Lægðin í þorskinum var fyrirséð 2003 og var vegna hungurs en ekki ofveiði því það getur ekki farið saman. Einungis var tímaspursmál hvenær þorskurinn braggaðist og nú er hann á uppleið úr litlum hrygningarstofni, eins og áratuga reynsla er fyrir.“ - shá
Mest lesið Inga Dögg lést á Skorradalsvatni Innlent Þrír flokkar skipa efstu sætin í nær öllum kjördæmum Innlent „Í versta falli alvarleg forréttindablinda“ Innlent Taldi að vegabréfinu hefði verið stolið við Skógafoss Innlent Lögregla með virkt eftirlit við afmæli Hell's Angels Innlent Handtekinn eftir að rottueitur fannst í barnamat Erlent Æðsti yfirmaður NASA: „Fylgjandi því að gera Plútó aftur að reikistjörnu“ Erlent Töluverður viðbúnaður lögreglu í Kópavogi Innlent Leist ekki á tillögu um opnun Hormússunds Erlent Lögðu hald á eggvopn og fíkniefni en handtóku engan Innlent Fleiri fréttir Eftirlit lögreglu og utanríkisráðherra um breytingar á herafla í Þýskalandi Inga Dögg lést á Skorradalsvatni Lögðu hald á eggvopn og fíkniefni en handtóku engan Verkalýðsfélög, gervigreind og Landeyjahöfn í Sprengisandi Fjórir handteknir vegna fjögurra líkamsárása Lögregla með virkt eftirlit við afmæli Hell's Angels Þrír flokkar skipa efstu sætin í nær öllum kjördæmum „Í versta falli alvarleg forréttindablinda“ Katla kjörin forseti Stúdentaráðs Töluverður viðbúnaður lögreglu í Kópavogi Taldi að vegabréfinu hefði verið stolið við Skógafoss „Þetta á náttúrulega ekki að gerast“ „Mjög gott að við höfum náð að slíðra sverðin“ Vinna að spálíkani til að skima sjálfvirkt fyrir vannæringu Beint: Pallborð Leigjendasamtakanna um húsnæðismál Glapræði að fella niður einu ferð dagsins: „Er öllum sama þó Grímsey fari í eyði?“ Það geti ekki hvaða skip sem er dýpkað í mynni Landeyjahafnar „Flokkur fólksins tekur í rauninni út óánægju með ríkisstjórnina“ Óska þess að ákvörðun um spítalann liggi fyrir sem fyrst Meirihlutinn á þingi fallinn, gremja í Grímsey og risadagur í íþróttunum Gulu hjólunum stillt upp á slysstöðum Verkalýðsfélögin úrelt og þau hefði mátt leggja niður um aldamótin Beittir lögreglutökum eftir ógnandi tilburði í miðbæ Fjöldi viðbragðsbíla kom á vettvang falsboðs Meirihlutinn fallinn og VG á þingi Farfuglar koma marktækt fyrr til landsins en áður „Dapurlegt pólitískt útspil“ Höfðinginn átti sig ekki á lokuninni Myndaveisla: Verkalýðsdagurinn haldinn hátíðlegur Sinueldur í Grafarvogi Sjá meira