Segir Íslendinga þurfa að undirbúa sig undir hrun evrunnar Jón Hákon Halldórsson skrifar 21. maí 2012 15:54
Illugi Gunnarsson, þingmaður Sjálfstæðisflokksins, vill að Steingrímur J. Sigfússon, efnahags- og viðskiptaráðherra, upplýsi um það hvað gert hafi verið til að undirbúa Ísland undir hrun evrunnar. Sagði Illugi í fyrirspurnartíma á Alþingi í dag að veruleg hætta væri á að Grikkir myndu þurfa að yfirgefa evrusamstarfið. Illugi vildi vita hvort ríkisstjórn Íslands hefði með formlegum hætti hafið formlegan undirbúning undir það og frekara hrun evrunnar. Hann spurði hvort settur hefði verið á laggirnar einhver viðbragðsáætlun eða undirbúningshópur á vegum ríkisstjórnarinnar eða hvort málið hafi verið tekið fyrir með fomlegum hætti á dagskrá ríkisstjórnarinnar. „Hér er um að ræða helstu viðskiptalönd Íslendinga sem gætu lent í gríðarlegum efnahagslegum þrengingum," segir Illugi. „Hvort sem um er að ræða sjávarútveginn eða aðrar atvinnugreinar eins og ferðaþjónustuna þá er ljóst að hrun evrunnar myndi hafa gríðarleg áhrif á efnahag okkar Íslendinga," sagði Illugi. Steingrímur svaraði því til að vel væri fylgst með þróun mála í Evrópu. Almennt væri talið að það væri hægt að ráða við það þótt aðstæður í Grikklandi yrðu áfram erfiðar. Verra væri ef vandræðin myndu breiðast út. „Þetta hefur verið rætt í ráðherranefnd um efnahagsmál, í nefnd um fjármálastöðugleika og í ríkisstjórn hefur verið farið yfir það hvaða aðstæður gætu komið upp," sagði Steingrimur. Hann sagði að það væri engin leið að sjá fyrir hversu víðtæk áhrifin yrðu ef staðan myndi halda áfram að versna í evrópu en þar væru mikilvægir markaðir fyrir ákveðnar framleiðsluvörur umfram aðrar. Almennt hefði Ísland þó verið í miklu skjóli og ástandið í Evrópu hingað til ekki haft mikil áhrif á útflutning.
Mest lesið Kosningaspá Vísis: Líkur Alberts aukast en Bjarnveigar dvína Innlent Ítreka yfirráð yfir Falklandseyjum eftir hótun Bandaríkjamanna Erlent Handtekinn eftir að hafa valdið umferðarslysi Innlent Fjölgar í hópi sakborninga og ráðist í húsleit Innlent Netanjahú greindist með krabbamein Erlent Hlýtt í dag en kuldi í kortunum Veður Slíkur fjöldi ekki sést síðustu fimmtíu ár Innlent Segja engan fund á dagskrá Erlent Gasabúar kjósa í fyrsta sinn í tuttugu ár Erlent Gerðu árás á mörgum stöðum á sama tíma Erlent Fleiri fréttir Slíkur fjöldi ekki sést síðustu fimmtíu ár Kosningaspá Vísis: Líkur Alberts aukast en Bjarnveigar dvína Handtekinn eftir að hafa valdið umferðarslysi Fjölgar í hópi sakborninga og ráðist í húsleit „Viðreisn er í algjörri lykilstöðu“ Bilið á milli turnanna breikkar Vendingar í borginni og tónleikar í heimahúsum Fimm bíla árekstur á Reykjanesbraut Listaverkið muni auka öryggi og vernda náttúruna á svæðinu Sinueldur kviknaði við bensínstöð Safna gögnum um ferðamanninn og meta stöðuna daglega Bein útsending: Þorgerður situr fyrir svörum um þjóðaratkvæðagreiðsluna Fékk í skrúfuna skammt frá landi Hvarf Hákonar á borði ríkislögreglustjóra Raforkureikningur í dreifbýli gæti lækkað strax í júlí Leita íslensks manns í Búdapest og ráðherra boðar jöfnun á raforkukostnaði Réðu aftur starfsmann sem var rekinn í siðanefndarfári Engin ákvörðun tekin eftir uppsögn dagdvalarsamnings Alvarlegt slys þegar ekið var á aldraða konu Starfsfólki MAST ógnað: „Ég veit hvar þú átt heima“ Fullyrðingar um ETS-kerfi og strandsiglingar standast ekki Hákon Þór hvarf sporlaust í Búdapest Sigrún Helga nýr forseti Röskvu Reykur yfir Keflavíkurflugvelli reyndist vera æfing Berserksgangur á gististað Farþegar sjá ekki fólkið sem gegnumlýsir farangurinn Vekur spurningar um hugsanlega meðferð við heilabilun Valdimar Örnólfsson er látinn Nýr sæstrengur frá Skotlandi í bígerð Sjávarútvegsstjórinn segir ESB opið fyrir undanþágum Sjá meira