Stórhættulegt athæfi í Ölfusi 11. september 2009 04:45 LAUSAGANGA Alvarleg slys hafa hlotist af lausagöngu stórgripa við og á þjóðvegum. „
Það var opnað fyrir tuttugu og þremur tryppum hjá mér og þeim hleypt út á þjóðveginn, sem er náttúrulega stórhættulegt athæfi." Þetta segir Hjörtur Bergmann Jónsson á Læk í Ölfusi. Hrossahópurinn sem um ræðir var á afgirtu túni hjá Hirti. Grindarhlið á lömum er milli hólfsins og þjóðvegarins. Það var opnað á föstudagskvöldið og fóru hrossin rakleiðis út á veginn. „Það kom maður hérna úr sveitinni brunandi hingað heim, þegar hann sá þetta. Við rukum til og komum þeim inn aftur. Það á enginn erindi þarna um nema heimafólk, svo mér sýnist einna helst að þetta hafi verið gert af kvikindisskap. Þetta er óskiljanlegt athæfi," bætir Hjörtur við og bendir á að svona nokkru fylgi slysahætta bæði fyrir skepnur og fólk. Farið hafi verið að dimma þegar hrossunum var hleypt út og þarna hefði getað orðið stórslys. „Við sjáum reglulega stórgripi á þjóðveginum, einkum þó hross," segir Frímann Baldursson, varðstjóri í lögreglunni á Selfossi. Hann segir að þetta geti verið allt að tíu gripa hópar. Ástæða þessa sé einkum lélegar girðingar og hlið, en stundum gleymi menn að loka hliðunum á eftir sér. Af þessu hafi hlotist alvarleg slys eins og dæmin sanni. - jss
Mest lesið Stór hluti felldur niður og Shamsudin-bræður játa Innlent Barn lést úr malaríu á Landspítalanum Innlent Telur handtökuna byggja á slúðri Innlent „Dýrlingurinn“ tekinn úr umferð en keyrir enn Innlent Hefur áhyggjur af gervigreind sem virðist sjálfsmeðvituð Erlent Leysigeisla beint að tveimur flugvélum í aðflugi Innlent „Þessi sleggja, sem var sveiflað, var gúmmísleggja“ Innlent „Lögreglan mun grípa fyrr inn í núna“ Innlent Leiguverðshækkanir hafa étið upp hækkun húsnæðisbóta Innlent Hiti að nítján stigum í dag en yfir tuttugu á morgun Veður Fleiri fréttir „Þessi sleggja, sem var sveiflað, var gúmmísleggja“ Verkefni stjórnvalda að takast á við undantekningar í skólakerfinu Leiguverðshækkanir hafa étið upp hækkun húsnæðisbóta Stór hluti felldur niður og Shamsudin-bræður játa Meðalvelta á kaupsamning 75,6 milljónir króna Leysigeisla beint að tveimur flugvélum í aðflugi Nýr tvöfaldur vegarkafli að bætast við Suðurlandsveg Telur handtökuna byggja á slúðri Magnað sjónarspil: Einmana hrefna komst í gott „Lögreglan mun grípa fyrr inn í núna“ Barn lést úr malaríu á Landspítalanum Gaf sig fram vegna hraðbankastuldar Aukið aðhald í ríkisfjármálum og lífsbarátta hvals „Dýrlingurinn“ tekinn úr umferð en keyrir enn „Það er ekkert verið að innleiða einhver svakaleg próf í Kópavoginum“ Hamarsvirkjun í bið frekar en vernd Gæsluvarðhald leiðbeinandans framlengt Konur með örorkulífeyri líklegri til að vera þolendur ofbeldis Vanræksla staðfest en niðurfelling málsins líka Höfuðpaur fær þremur mánuðum lengri dóm en burðardýr Veðrið sem hlaupararnir á laugardag geta búist við „Þetta er innrás“ Viðkvæm gögn tengd stjórnmálaflokki séu á símanum Óbreyttir stýrisvextir, samræmd námspróf og breytt snið á Menningarnótt Kjósa um sameiningu Skorradalshrepps og Borgarbyggðar í september Enginn handtekinn vegna þjófnaðar á hraðbanka í Mosfellsbæ Brugðið eftir viðtal við borgarstjóra Mínútuþögn á Menningarnótt Kópavogsbær tekur aftur upp samræmd próf „Það er engin sleggja“ Sjá meira