Gæludýr grafin í óleyfi 11. september 2009 18:45
Gæludýr hafa verið grafin í Heiðmörk þrátt fyrir að slíkt sé stranglega bannað. Vatnsból höfuðborgarbúa eru á svæðinu. Nokkuð hefur verið um að gæludýr hafi verið grafin í Heiðmörk og krossar jafnvel reistir við grafirnar til minningar um dýrin. Grafirnar hafa vakið athygli fólks sem þar hefur verið á göngu en fréttastofu gekk fram á fimm slíkar á ferð sinni um svæðið. Þær virðast allar hafa verið grafnar í sumar. Stranglega bannað er að grafa dýr á svæðinu. Helgi Gíslason, framkvæmdastjóri Skógræktar Reykjavíkur, sagði í samtali við fréttastofu að starfsmenn Skógræktarinnar rekist af og til á grafir gæludýra í skóginum. Þær séu allar gerðar í leyfisleysi. Helgi bendir á að vatnsból Reykvíkinga, Kópavogsbúa og Garðbæinga eru í Heiðmörk. Verndun vatnsbólanna sé ein af ástæðum þess að bannað er að grafa þar gæludýr. Samkvæmt upplýsingum frá Reykjavíkurborg gildir almennt sú regla að bannað er að urða gæludýr á höfuðborgarsvæðinu. Hægt er að láta brenna dauð gæludýr á dýraspítalanum í Víðidal eða láta urða dýrin í urðunarstöð Sorpu í Álfsnesi. Nokkrir gæludýragrafreitir eru einnig á landinu. Einn þeirra er Kjós en þar kostar hátt í tíu þúsund krónur að fá grafreit fyrir gæludýr. Tæplega þrjú hundruð dýr eru grafin þar.
Mest lesið Sektuð í gjaldfrjálsu stæði og sneri vörn í sókn Innlent Prestur á Dalvík sver af sér kjaftasögur um ókristilega hegðun Innlent Hafi tekið bílstjórann hálstaki meðan hann lá á flautunni Innlent Sögð vafin í ísraelska fánann og veifað um eins og verðlaunagrip Erlent Sakar Weekday um stuld: „Hönnun sem ég er búin að vinna í í marga mánuði“ Innlent Tæplega þúsund manns innlyksa á Everest Erlent Tveir á sjúkrahús eftir að bíll valt við árekstur Innlent Síðasti fuglinn floginn Innlent Látinn eftir skotárás í Kaupmannahöfn Erlent „Þetta er ekki á borði þingflokksins“ Innlent Fleiri fréttir Nýr formaður SUS vill sækja til hægri Miður að börn fylgi foreldrum en ekki öfugt Hafi tekið bílstjórann hálstaki meðan hann lá á flautunni Play skuldi Isavia hálfan milljarð króna Tveir á sjúkrahús eftir að bíll valt við árekstur „Þetta er ekki á borði þingflokksins“ Umdeild brottvísun, fjárhagstjón á Grænlandi og kyngreint sæði Óttast áhrifin á vinnandi mæður Sakar Weekday um stuld: „Hönnun sem ég er búin að vinna í í marga mánuði“ Síðasti fuglinn floginn Sektuð í gjaldfrjálsu stæði og sneri vörn í sókn Ísrael sagt sig úr samfélagi siðaðra manna Símafrí en ekki símabann „Sjálfsíkveikja“ olli eldsvoða í þvottahúsi Síðbúnar hádegisfréttir Bylgjunnar: Áróður í Eurovision, nýtt landamærakerfi og „símafrí“ í skólum Sótti kindabyssu eftir hótun um að skjóta fyrrverandi og fimm aðra Leikskólamál, afnám hafta og Trump-isminn Stjórnarformaður RÚV vill að Ísrael verði tafarlaust vikið úr Eurovision Gekk berserksgang og beraði sig Prestur á Dalvík sver af sér kjaftasögur um ókristilega hegðun Eldur í þvottahúsi á Granda Prestur og prófastur bíður spenntur eftir Hrútaskránni Kurr innan Samfylkingarinnar vegna brottvísunar ungbarna Fokdýrar flugferðir, ögurstund á Gasa og óvenjulegt innbrot Boða íbúafundi vegna mögulegrar sameiningar sveitarfélaganna Alelda bíll á Reykjanesbraut Framkvæmdirnar komi eftir ákall frá íbúum Safnaði í bálköst innandyra en kennir stundarbrjálæði um íkveikjuna Skrítin afstaða BSRB og ASÍ Tekist á um leikskólamál og árásir á Gasa Sjá meira
Síðbúnar hádegisfréttir Bylgjunnar: Áróður í Eurovision, nýtt landamærakerfi og „símafrí“ í skólum