Burðardýr í tveggja ára fangelsi fyrir þrjú kíló af amfetamíni 22. desember 2008 14:06
Tuttugu og eins árs gamall karlmaður, Andri Þór Eyjólfsson, var dæmdur í tveggja ára fangelsi í Héraðsdómi Reykjaness í morgun fyrir innflutning á fíkniefnum í apríl síðast liðnum. Andri kom til Keflavíkurflugvallar frá París mánudaginn 7.apríl á þessu ári. Þegar hann kom að hliði sem ætlað er þeim sem ekki hafa tollskyldan varning meðferðis og veitti fíkniefnahundur piltinum nokkra athygli. Andri hafði meðferðis eina ferðatösku og eina handtösku og var því færður til skoðunar í leitarklefa tollgæslunnar þar sem leitað var í farangri hans. Kom þá í ljós pakki undir fölskum botni í ferðatöskunni og í kjölfarið var lögregla kölluð til. Andri viðurkenndi strax að fíkniefni væru í ferðatöskunni og sagði að líklega væri um að ræða 1400-1800 grömm af amfetamíni. Sagðist hann hafa flutt efnin hingað til lands fyrir aðila sem hann vildi ekki nafngreina en með því hafi hann verið að greiða upp fíkniefnaskuld. Við nánari skoðun kom í ljós að um var að ræða tæp þrjú kíló af amfetamíni. Sagði Andri fyrir dómi að hann hefði verið kominn í 800.000 króna skuld vegna fíkniefnakaupa þegar honum bauðst til þess að fara út og flytja inn umrædd fíkniefni. Eins og fyrr segir var hann dæmdur í tveggja ára fangelsi en til frádráttar þeirri refsingu kemur gæsluvarðhald sem hann sat í frá 8. Til 17.apríl sl.
Mest lesið Sætir morðhótunum og óhróðri í vinsælum Facebook-hópi Innlent Gabríel Douane og fimm aðrir sýknaðir Innlent Gunnar Þórðarson er látinn Innlent Tugir tilkynninga í viku: „Þetta var ekki í fyrsta skipti sem þau voru handtekin“ Innlent Heilum gámi af kampavíni stolið af Ölgerðinni Innlent Horfðu á bílinn velta niður fjallið Innlent Mosfellsdalur minnti á vígvöll Innlent Rússnesk stýriflaug líklega lent í Póllandi Erlent Okkar McCartney, okkar Bach kveður Innlent Hvað er í boði um verslunarmannahelgina? Innlent Fleiri fréttir Stærsta umferðarhelgi ársins hafin Bílstjóri horfði á skelfingu lostinn Meirihluti ætlar að segja já í ágúst Skilningsleysi foreldra mætti litblindum syninum Staðan orðin „þokkalega góð“ Tugir tilkynninga í viku: „Þetta var ekki í fyrsta skipti sem þau voru handtekin“ Okkar McCartney, okkar Bach kveður Vasaþjófar gómaðir á Suðurlandi og minkafár í rénun Fleiri en einn hafi verið að verki Dýralæknafélag Íslands fordæmir skemmdarverk í Dalsbúi Gunnar Þórðarson er látinn Dregur úr ánægju með frammistöðu ríkisstjórnarflokkanna Sex handteknir grunaðir um vasaþjófnað Sætir morðhótunum og óhróðri í vinsælum Facebook-hópi Gabríel Douane og fimm aðrir sýknaðir Heilum gámi af kampavíni stolið af Ölgerðinni Mosfellsdalur minnti á vígvöll Greinir á um leiðir til að draga úr nikótínneyslu ungmenna Gæsluvarðhald samþykkt yfir Ming Ting „Það er búið að slökkva og húsið er ónýtt“ Gripinn á nánast tvöföldum hámarkshraða Skothljóð og minkafár í Mosfellsdal í beinni Eldur logaði í Stykkishólmi Horfðu á bílinn velta niður fjallið Hvað er í boði um verslunarmannahelgina? „Þeir skulu ekki halda það að þeir geti drepið mig“ Slapp vel þegar bíll hennar valt yfir 200 metra niður Bolafjall Hafdís Huld í bæjarstjórastólinn Allir á hlaupum að reyna fanga minka Ráðlagt að hafa garða snyrtilega og stéttir sópaðar þegar fólk er í burtu Sjá meira