Erlent

Læknar lýstu skurðaðgerð á Twitter

Úr myndbandi sem læknar birtu á Twitter
Úr myndbandi sem læknar birtu á Twitter mynd/Youtube
Skurðlæknar í Houston í Bandaríkjunum brutu blað í sögu læknisvísinda þegar hjartaskurðagerð var lýst í beinni útsendingu á samskiptasíðunni Twitter.

Um var að ræða hefðbundna kransæðaaðgerð. Sjúklingurinn var 57 ára gömul kona.

Fyrstu skilaboð skurðlæknanna á Twitter voru varúðarorð: „Varúð! Næstu færslur eru ekki fyrir viðkvæma."

Læknarnir skiptust á að birta skilaboðin. Flest komu þau frá Dr. Michael Macris en hann stjórnaði skurðaðgerðinni. Hann birti nokkur myndskeið sem tekin voru á myndavél sem komið hafði verið fyrir á hjálmi hans.

Skilaboðin voru á köflum afar ógnvænleg. „Dr. Macris opnaði brjósthol sjúklingsins með hnífi og sög."

mynd/Twitter
Læknarnir birtu einnig fróðleiksmola um hjartað og annað tengt aðgerðinni. Dr. Marcris svaraði síðan spurningum Twitter-notenda í rauntíma.

Aðgerðin gekk afar vel og mun konan ná fullum bata á næstu vikum.

Hægt er að skoða Twitter-færslurnar á heimasíðu Memorial Hermann spítalans í Houston.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×