Konur sköruðu framúr á meðal rafvirkja JMG skrifar 27. september 2011 12:00 Konurnar lukkulegu með verðlaunin sín.
Tvær ungar konur hlutu um helgina verðlaun fyrir besta árangur á öllum hlutum sveinsprófa í rafvirkjun og rafeindavirkjun. Launakannanir RAFÍS hafa sýnt að konur með sveinsbréf eru með hærri heildar meðallaun en karlar. Um helgina fengu nýsveinar í rafvirkjun, rafveituvirkjun og rafeindavirkjun afhent sveinsbréf. Veitt voru að venju verðlaun fyrir bestan árangur á sveinsprófi og í ár voru það tvær ungar konur Ágústa Ýr Sveinsdóttir rafvirki og Sylvía Dagsdóttir rafeindavirki sem náðu bestum árangri á öllum þremur sviðum sem verðlaunað var fyrir. Þetta er í fyrsta skipti í sögu rafiðnaðarins sem tvær konur ná bestum árangri á öllum hlutum sveinsprófanna í bæði rafvirkjun og rafeindavirkjun á sama tíma. Í tilkynningu frá Rafiðnaðarsambandi Íslands segir að þetta sanni að rafiðngreinar höfði ekki síður til kvenna en karla og fagnar sambandið því að áhugi kvenna hafi aukist á undanförnum árum. Þá hafa launakannanir sambandsins sýnt að rafkonur, þær konur sem hafa sveinsbréf í rafiðngreinum, hafa verið með hærri meðalheildarlaun en rafkarlar. Á síðasta ári var munurinn rúm tíu prósent og er þá búið að taka tillit til þess að karlar unnu tvöfalt meiri yfirvinnu en konur á tímabilinu. Þá vonar sambandið að árangur þessarra ungu kvenna verði hvatning fyrir ungt fólk að kynna sér rafiðnnám.
Mest lesið Vara við manni sem hafi óskað eftir persónuupplýsingum nemenda Innlent Funduðu í Moskvu um endalok stríðsins Erlent Áfall og tjón að missa skyndilega teljarann Innlent „Það þarf að setja það í algjöran forgang að börn mæti í skólann“ Innlent Narsarsuaq-flugvöllur að öðlast framhaldslíf Innlent Miklar truflanir vegna mótmæla gegn innflytjendum Erlent Missti besta vin sinn á Krýsuvíkurvegi og son í umferðarslysi Innlent Þyrlan kölluð út vegna slyss við Sólheimajökul Innlent Vara við snörpum hviðum Veður Posarnir komnir í lag á ný Innlent Fleiri fréttir „Það þarf að setja það í algjöran forgang að börn mæti í skólann“ Narsarsuaq-flugvöllur að öðlast framhaldslíf Posarnir komnir í lag á ný Þyrlan kölluð út vegna slyss við Sólheimajökul Áfall og tjón að missa skyndilega teljarann Vara við manni sem hafi óskað eftir persónuupplýsingum nemenda Óþarft að fara til Reykjavíkur til að hlaupa Bilun hjá Teya olli löngum röðum Missti besta vin sinn á Krýsuvíkurvegi og son í umferðarslysi „Ég hafna þeirri fullyrðingu alfarið“ „Búningadjamm“ á Þjóðminjasafninu í dag Elti blóðugan brotaþola inn á lögreglustöðina Ólga innan SÁÁ og upprisa AfD Tveir handteknir í sérsveitaraðgerð á Akureyri Sjö fluttir á slysadeild eftir að bíl var ekið á tvo ljósastaura Hátt í áttatíu eftirskjálftar Handteknir eftir líkamsárás Kýld niður fjallið og hafi svo horft á formanninn ljúga í fjölmiðlum Jarðskjálfti í Brennisteinsfjöllum Rafmagnslaust var í Reykjavík og Mosfellsbæ Enginn andvígur hvalveiðum Banna innfluttar dýraafurðir frá Brasilíu Skordýr í súpu skólabarna Sérsveitaraðgerð við heimahús á Akureyri Anna Lilja og Sæunn sýslumenn tímabundið Finnbjörn býður sig ekki aftur fram til forseta ASÍ Telja þjóðaratkvæðagreiðsluna hafa styrkt Samfylkinguna Hugsi yfir framlagi Kristrúnar Fella niður gatnagerðargjald vegna bílakjallara Næstum allar ábendingarnar um Áfram Ísland Sjá meira