Innlent

Lögreglan leitar vitna

Jón Hákon Halldórsson skrifar
Miklubraut, þar sem áreksturinn varð.
Miklubraut, þar sem áreksturinn varð.
Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu óskar eftir vitnum að umferðarslysi sem varð á Miklubraut í Reykjavík, austan Skeiðarvogs, laust fyrir klukkan hálfátta í morgun. Þar rákust saman ljósgrár Citroen Berlingo, sem er lítill sendibíll, og grár BMW en bílunum var ekið austur Miklubraut.

Bæði ökutækin höfnuðu utan vegar en sendibíllinn stöðvaðist á umferðareyju. BMW-inn lenti hins vegar á ljósastaur og er mikið skemmdur. Meiðsli ökumannanna voru talin minniháttar. Þeir sem urðu vitni að slysinu eru vinsamlegast beðnir um að hafa samband við lögregluna í síma 444-1000.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×