Morsí sakaður um tengsl við systursamtök Bræðralagsins Guðsteinn Bjarnason skrifar 26. júlí 2013 10:25 Stuðningsmenn Morsís krefjast þess enn að hann fái forsetaembættið aftur. Nordicphotos/AFP
Ákæruskjal á hendur Múhamed Morsí hefur verið birt, en hann hefur verið í haldi egypska hersins frá því honum var steypt af stóli þann 3. júlí. Í skjalinu kemur í fyrsta sinn fram hin opinbera skýring hersins á því að honum er haldið föngnum. Þar er hann sakaður um tengsl við palestínsku Hamas-samtökin, sem eru systursamtök Bræðralags múslima, hinna egypsku samtaka sem Morsi sjálfur tilheyrir. Í ákærunni er Morsi gefið að sök að hafa flúið úr fangelsi með hjálp Hamas árið 2011, þegar uppreisnin gegn Hosni Mubarak forseta var í hámarki. Það er AP fréttastofan sem greinir frá þessu og vitnar í egypsku ríkisfréttastofuna MENA. Birting skjalsins ber upp á sama dag og boðað hefur verið til fjöldamótmæla í Kaíró, bæði af hálfu Bræðralags múslima og af hálfu hersins. Abdel Fatta al Sísí, yfirmaður egypska hersins, hvatti í vikunni fólk til að fjölmenna út á götur í dag til að sýna bæði hernum og bráðabirgðastjórn landsins stuðning. Herinn og stjórnin þurfi skýrt „umboð“ til að „gera það sem þarf“ til að kveða niður ofbeldismenn, sem herinn segir að hafi átt upptökin að mannskæðum átökum í Kaíró undanfarið. Stuðningsmenn Morsis saka herinn um mannrán og krefjast þess að Morsí fái forsetaembættið aftur. Í egypskum fjölmiðlum hefur mikið verið fjallað um flótta Morsís úr fangelsi. Bræðralag múslima hefur haldið því fram að það hafi verið heimamenn, sem hjálpuðu honum að flýja, en ýmsar sögur hafa gengið um að Hamas-samtökin í Palestínu og Hezbollah-samtökin í Líbanon hafi skipulagt flóttann.
Mest lesið Þúsundir hermanna kallaðir heim frá Þýskalandi Erlent „Slátrarinn frá Bosníu“ við dauðans dyr Erlent Fjöldi viðbragðsbíla kom á vettvang falsboðs Innlent Meirihlutinn fallinn og VG á þingi Innlent „Dapurlegt pólitískt útspil“ Innlent Höfðinginn átti sig ekki á lokuninni Innlent Lífið umturnaðist í kjölfar slyssins Innlent Þetta sé bæjarstjórn Kópavogs til skammar Innlent Farfuglar koma marktækt fyrr til landsins en áður Innlent Myndaveisla: Verkalýðsdagurinn haldinn hátíðlegur Innlent Fleiri fréttir Þúsundir hermanna kallaðir heim frá Þýskalandi „Slátrarinn frá Bosníu“ við dauðans dyr Ákærður fyrir að hafa stungið tvo gyðinga Safna í sérstakt sjóherlið á Norðurslóðum Vilja nú alþjóðlegt samstarf um Hormússund Ekkert fararsnið á Rússum í Malí Mamdani vill að Bretar skili Koh-i-Noor Bútaði líkið í sundur í uppblásinni sundlaug Trump segist vera að íhuga að draga saman seglin í Þýskalandi Áttu langt símtal Repúblikanar vinna orrustu í kjördæmastríðinu Byltingarvörðurinn herðir tökin á stjórnartaumunum Einn handtekinn grunaður um stunguárás gegn gyðingum Íslenskir jöklar töpuðu mestu í Evrópu Þingmenn klöppuðu óspart fyrir konunginum Afhroð Rússa í Malí: Vígamenn segjast stjórna stórum hluta landsins Ásýnd Trump mun prýða viðhafnarútgáfu vegabréfsins Fyrrverandi forstjóri FBI ákærður fyrir líflátshótun í garð Trump Einn skæðasti glæpamaður Mexíkó gómaður í fráveituröri Játaði að hafa skipulagt hryðjuverk á tónleikum Swift „Mamma mín var skotin í Karli, trúið þið því?“ Repúblikanar fylgja Trump: Árásin sögð sýna nauðsyn þess að klára veislusalinn Aftökum fjölgaði verulega í kórónuveirufaraldrinum Rússnesk lúxussnekkja fór um Hormús-sund án vandræða Konungshjónin komin vestur um haf og Karl ávarpar þingið í dag Merz segir Írani spila með Bandaríkjastjórn Ákærður fyrir banatilræði við Trump Vara við aukinni ógn vegna sjórána við strendur Sómalíu „Við búum í brjáluðum heimi“ Sendi fjölskyldunni lista af skotmörkum í forgangsröð Sjá meira