Innlent

Þriðja fálkanum sleppt í gær

Kvenkyns fálka var sleppt úr Húsdýragarðinum í gær í fyrsta skipti. Þetta er þriðji fálkinn sem flýgur burt úr garðinum á undanförnum vikum. Húsdýragarðurinn hefur undanfarið hýst þrjá slasaða fálka. Þeir hafa nú allir braggast og flogið til heimkynna sinna á nýjan leik. Í gær var fyrsta kvenkyns fálkanum sleppt. Þar sem þeir eru þyngri en karlkyns fálkar var óttast að flugið yrði erfitt og fálkinn yrði jafnvel að snúa aftur í garðinn. Tómas Guðjónsson, forstöðumaður Húsdýragarðsins, segir óttann hafa reynst ástæðulausan. Fálkinn hafi verið fallegur á flugi og þotið eins og byssukúla nokkra kílómetra á örfáum sekúndum.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×