Innrita nemendur án samþykkis ráðuneytis 16. mars 2012 06:00 Nemandi á fyrsta ári við Menntaskólann Hraðbraut hefur fengið synjun frá LÍN vegna umsóknar um jöfnunarstyrk þar sem námið er ekki lengur viðurkennt af menntamálaráðuneytinu. fréttablaðið/valli
Byrjað er að innrita nýja nemendur í Menntaskólann Hraðbraut þrátt fyrir að námið sé ekki samþykkt af menntamálaráðuneyti. Óvíst er um upphæð námsgjalda og jöfnunarstyrki. Ráðuneytinu hafa borist fyrirspurnir frá foreldrum. Mennta- og menningarmálaráðuneytinu hafa borist fyrirspurnir um rétt nemenda til að fá nám sitt á fyrra námsári í Menntaskólanum Hraðbraut metið í öðrum framhaldsskólum. Samkvæmt upplýsingum frá ráðuneytinu má ráða af fyrirspurnunum að ekki séu ljós möguleg áhrif þess að námið er ekki lengur viðurkennt af yfirvöldum. Innritun fyrir nýja nemendur skólaárið 2012 og 2013 í Hraðbraut hófst í vikunni. Ólafur Johnson skólastjóri segir að þó sé ekki vitað hversu há skólagjöldin verða, en þau eru nú 249 þúsund krónur fyrir árið. Hann telur líklegt að gjöldin hækki náist ekki nýir samningar við ráðuneytið fyrir sumarið. Samkvæmt Ólafi er ekki vitað til þess að nokkur nemandi hafi skráð sig. „Það verður fullt af fólki sem mun sækja um skólavist ef við störfum næsta vetur, ég hef engar áhyggjur af því,“ segir Ólafur. „En auðvitað er það áhyggjuefni að umsóknum beint úr grunnskólum hefur fækkað og það má segja að það sé partur af aðför ráðuneytisins að reyna að tryggja að erfitt sé að sækja um í skólann.“ Ólafur skoraði á Katrínu Jakobsdóttur menntamálaráðherra að mæta á opinn fund um málefni skólans sem átti að fara fram í gærkvöld. Honum var þó aflýst þar sem ekkert svar barst frá ráðuneytinu, að sögn Ólafs. Katrín hefur verið stödd erlendis alla vikuna. Ólafur segist þurfa að leggja út fyrir kostnaði við rekstur skólans úr eigin vasa, skipti ráðuneytið ekki um skoðun. „Það er á mína persónulegu fjárhagslegu ábyrgð ef eitthvað fer úrskeiðis í fjármálum skólans,“ segir hann. „Ég er með veð í öllum mínum eignum og konunnar minnar og ég mundi tryggja skólastarfið áfram með sama hætti.“ Námið fyrir árið 2012 og 2013 er ekki samþykkt af ráðuneytinu þar sem fallið var frá þjónustusamningum við skólann síðasta haust. Ekki er gert ráð fyrir fjárveitingum til Hraðbrautar í fjárlögum þessa árs. Þeim nemendum sem þegar voru skráðir í námið var þó gefinn kostur á því að klára það fram til vorsins 2012.sunna@frettabladid.is
Mest lesið „Ef ég hefði ekki farið upp á heilsugæslu þá hefði ég ekki fengið heilablóðfall“ Lífið Segir af og frá að hann hafi veitt stórfé í Brexit-baráttuna Innlent „Engin orð ná utan um slíkan missi“ Innlent Öll hin látnu um og undir tvítugu Innlent Einn fluttur á slysadeild eftir eld í Holtagörðum Innlent Ungum Pólverja best treyst til forystu í Langanesbyggð Innlent Myndasyrpa: Síðasti kvöldfréttatími Sýnar Lífið Glæpaforingi dæmdur fyrir morðið á Tupac Erlent Þurfi að hækka laun og fjölga frídögum Innlent Kviknaði í jeppa á Reykjanesbraut Innlent Fleiri fréttir Einn fluttur á slysadeild eftir eld í Holtagörðum Hlaup af þessari stærðargráðu vel þekkt í Múlakvísl Kviknaði í jeppa á Reykjanesbraut Leggja til að Evrópusambandsumsóknin verði formlega dregin til baka Segir af og frá að hann hafi veitt stórfé í Brexit-baráttuna Sakborningur í Kársnesmáli sóttur til Spánar Sinntu hávaðatilkynningum í heimahúsum „Engin orð ná utan um slíkan missi“ Enn óljóst hvað verður um umsóknina Ungum Pólverja best treyst til forystu í Langanesbyggð Þurfi að hækka laun og fjölga frídögum Öll hin látnu um og undir tvítugu „Við segjum ekki bless, við segjum takk“ Síðasti kvöldfréttatími Sýnar „Ríkið á stóra sök á þessu“ Líka slæmar fréttir fyrir Rúv Á morgun mega hommar gefa blóð Tekjuáætlun verulega undir áætlun „Þetta mun auka enn á vald Ríkisútvarpsins“ Metfjöldi kvartana Ekkert ákveðið á fundinum: „Það væru fráleit viðbrögð við þessari niðurstöðu“ Þrjú ungmenni létust í bílslysinu á Krýsuvíkurvegi Skora á stjórnvöld að tryggja fasta viðveru þyrlu á Akureyri Reiðarslag fyrir fréttaflutning á Íslandi Gjaldtaka um nýjan Hornafjarðarveg hefst á morgun Dapurlegt að sjá á eftir kvöldfréttum Sýnar Fundur utanríkismálanefndar og ráðherra ræðir stöðu fjölmiðla Niðurskurður hjá Rúv upp á 10 til 15 stöðugildi Trausti nýr starfsmaður þingflokks Miðflokksins Alvarlegt slys á Krýsuvíkurvegi Sjá meira