Leggur til umbætur á vegamótum eftir umferðarslys 17. október 2007 16:57 Ágúst Mogensen er forstöðumaður Rannsóknarnefndar flugslysa.
Rannsóknarnefnd umferðarslysa hefur lagt til umbætur á vegamótum Akrafellsvegar og Innessvegar vegna banaslyss sem þar varð í sumar. Þar ók ökumaður strætisvagns í veg fyrir þrjá bifhjólamenn með þeim afleiðingum að sá sem fremstur var lést. Rannsóknarnefndin hefur lokið rannsókn sinni á málinu og segir meginorsök slyssins þá að ökumaður strætisvagnsins hafi ekið í veg fyrir bifhjólamanninn, blindaður af sól. Þá telur nefndin að reynsluleysi ökumannsins hafi verið meðverkandi þáttur í slysinu. Rannsóknarnefndin sendi Vegagerðinni bréf í mars í fyrra í kjölfar alvarlegs slyss sem varð á vegamótunum og benti meðal annars á að þau væru illa merkt, hæðarmismunur væri mikill við vegamótin og umhverfi þeirra hættulegt ef ökutæki færu út af. Í kjölfar banaslyssins í sumar sendi svo Hvalfjarðarsveit Rannsóknarnefndinni bréf um úrbótatillögur en umferð um vegamótin hefur aukist undanfarin ár. Breytingar eru í vændum samkvæmt upplýsingum frá Vegagerðinni. Þá telur rannsóknarnefnd umferðarslysa mikilvægt að ökumenn beiti sólskyggni þegar sól er lágt á lofti og sömuleiðis sé mikilvægt að hreinsa rúður ökutækja reglulega. Ljóst sé að óhreinindi á framrúðu strætisvagnsins séu meðverkandi þáttur í slysinu. Þá er í skýrslu Rannsóknanefndar ábending til ökukennara sem kenna á bifhjól að leggja mikla áherslu á þjálfun í að sveigja frá hættu.
Mest lesið Senda þjóðinni „skýr skilaboð“ á óróatímum Innlent 33 ára sósíalisti hafði betur gegn Cuomo í New York Erlent Segja manninn hafa glímt við alvarleg veikindi Innlent Bretar eignast aftur herþotur sem geta flutt kjarnorkuvopn Erlent Ræddu veiðigjöldin til að ganga hálf fjögur Innlent Skildi ekki hvers vegna kennarinn var ekki rekinn Innlent Ný skýrsla: Bandaríkjunum mistókst að eyðileggja kjarnorkumannvirki Írana Erlent Slagsmál á hóteli í miðborginni Innlent Trump gefur lítið fyrir Pentagon skýrsluna og segir árásina hafa heppnast fullkomlega Erlent Margir í vandræðum vegna of skyggðra rúðna Innlent Fleiri fréttir Verður nýr skólameistari á Húsavík Senda þjóðinni „skýr skilaboð“ á óróatímum Skildi ekki hvers vegna kennarinn var ekki rekinn Ræddu veiðigjöldin til að ganga hálf fjögur Slagsmál á hóteli í miðborginni Margir í vandræðum vegna of skyggðra rúðna Tillögur um skattalækkanir felldar: Segir ótrúlegt að hlusta á rök „Skattfylkingarinnar“ Segja manninn hafa glímt við alvarleg veikindi Reiður Trump, fiskeldisáform í Eyjafirði og fjölbragðaglíma Efla samstarf Háskóla Íslands og Íslenskrar erfðagreiningar Vilja bjóða út eftirlit en meirihlutanum líst ekkert á það Stuðningur við veiðigjaldafrumvarpið dregst saman Ekki um sama þvott að ræða í Björg og Fönn Páll skipstjóri krefur Ríkisútvarpið um milljónir króna „Þetta rugl í Kastljósi í gær af hálfu forsætisráðherra er skammarlegt“ Vopnahlé í Miðausturlöndum í hættu og veiðigjöldin enn til umræðu Eldur í tveimur taugrindum Sektaður um 240 þúsund fyrir að halda sauðfé í Grindavík Fundað á Alþingi fram á nótt og framhald strax klukkan tíu Breytingar á lögum um sjúkratryggingar mismuni eftir efnahagsstöðu 42 prósent fanga erlendir ríkisborgarar Sé tilraun til að þagga niður í gagnrýni Fjögur búsetuúrræði Vinnumálastofnunar standa auð Ísraelar samþykkja vopnahlé Trumps Æf vegna ummæla Kristrúnar um falsfréttir: „Þessi skammarlegu, ómaklegu ummæli“ Engar stórvirkjanir í Skagafirði en opið að fara í Kjalölduveitu Ísland muni ekki verja fimm prósentum til varnarmála Mikill reykur eftir að kviknaði í annarri efnalaug „Við erum auðvitað ekki komin þangað“ Telja einhvern hér á landi búa yfir vitneskju um hvað kom fyrir Jón Þröst Sjá meira