Innlent

Helga hjartaþega heilsast vel

Helgi Einar Harðarson, sem gekkst undir hjarta- og nýrnaígræðslu í Svíþjóð í síðasta mánuði, segist svo hress að hann langi mest til að hlaupa um allt. Hann þykir hafa náð sér ótrúlega vel eftir aðgerðina. Helgi Einar, sem er rúmlega þrítugur, gekkst undir ígræðsluna á Sahlgrenska-sjúkrahúsinu í Gautaborg fyrir fjórum vikum. Þetta er í annað skipti sem hann þurfti að gangast undir hjartaígræðslu. Hann hefur að undanförnu verið í endurhæfingu og segist Helgi Einar vera ótrúlega hress. Hann sé nú á endurhæfingardeild þar sem honum sé kennt hvernig hann eigi að byggja sig upp eftir aðgerðina og „læra á nýja hjartað“. Helgi Einar segi nýja hjartað mjög kraftmikið og hann hafi af þeim sökum farið aðeins of geist í síðustu viku. Hann hafi fengið smá vöðvabólgu í kjölfarið og legið í rúminu í 1-2 daga. Ef allt gengur upp verður Helgi Einar væntanlega útskrifaður af Sahlgrenska-sjúkrahúsinu eftir tvær vikur. Hann segir það frábæra tilfinningu að geta nú loks horft til framtíðar og að honum líði ofsalega vel. Það eina sem hann vanti núna eru meiri vöðvar. Þegar Helgi Einar kemur til Íslands verður hann áfram undir stöðugu eftirliti lækna. Hins vegar er strax byrjað að minnka við lyfjagjöfina því öll sýni sem hafa verið tekin úr Helga sýna enga höfnun líkamans á hjartanu sem er einstakt að sögn Helga Einars.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×