Helga hjartaþega heilsast vel 13. október 2005 14:24
Helgi Einar Harðarson, sem gekkst undir hjarta- og nýrnaígræðslu í Svíþjóð í síðasta mánuði, segist svo hress að hann langi mest til að hlaupa um allt. Hann þykir hafa náð sér ótrúlega vel eftir aðgerðina. Helgi Einar, sem er rúmlega þrítugur, gekkst undir ígræðsluna á Sahlgrenska-sjúkrahúsinu í Gautaborg fyrir fjórum vikum. Þetta er í annað skipti sem hann þurfti að gangast undir hjartaígræðslu. Hann hefur að undanförnu verið í endurhæfingu og segist Helgi Einar vera ótrúlega hress. Hann sé nú á endurhæfingardeild þar sem honum sé kennt hvernig hann eigi að byggja sig upp eftir aðgerðina og „læra á nýja hjartað“. Helgi Einar segi nýja hjartað mjög kraftmikið og hann hafi af þeim sökum farið aðeins of geist í síðustu viku. Hann hafi fengið smá vöðvabólgu í kjölfarið og legið í rúminu í 1-2 daga. Ef allt gengur upp verður Helgi Einar væntanlega útskrifaður af Sahlgrenska-sjúkrahúsinu eftir tvær vikur. Hann segir það frábæra tilfinningu að geta nú loks horft til framtíðar og að honum líði ofsalega vel. Það eina sem hann vanti núna eru meiri vöðvar. Þegar Helgi Einar kemur til Íslands verður hann áfram undir stöðugu eftirliti lækna. Hins vegar er strax byrjað að minnka við lyfjagjöfina því öll sýni sem hafa verið tekin úr Helga sýna enga höfnun líkamans á hjartanu sem er einstakt að sögn Helga Einars.
Fréttir Innlent Mest lesið Tugum sagt upp í þremur hópuppsögnum Innlent Önnur lægð nálgast landið Veður Íranska þjóðin vöruð við því að nota lestar landsins í dag Erlent Eldri borgarar verið í lífshættu vegna ábyrgðarleysis framkvæmdaaðila Innlent Artemis II er á heimleið Erlent Vaktin: Austanbylur annan í páskum Veður JD Vance heimsækir Orban fyrir kosningarnar um helgina Erlent Stærðar gámur valt af Fjósakletti og lenti á hvolfi Innlent „Þetta er algjör hetjudáð að fara þarna upp á“ Innlent Virkjuðu flugslysaáætlun á Akureyri Innlent Fleiri fréttir Keflavíkurflugvöllur á varaafli vegna eldingar Þau skipa lista Sósíalistaflokksins í Reykjavík Tugum sagt upp í þremur hópuppsögnum Eldri borgarar verið í lífshættu vegna ábyrgðarleysis framkvæmdaaðila Virkjuðu flugslysaáætlun á Akureyri Stærðar gámur valt af Fjósakletti og lenti á hvolfi Rotaðist eftir að hafa fokið á höfuðið Flugmönnum leyfist að gera mistök í flughermi „Þetta er algjör hetjudáð að fara þarna upp á“ Rúta valt á Kjalarnesi Fastir bílar, fall af hestbaki og þakkjölur við það að losna Tuttugu þúsund á hvern illa búinn hjólbarða Vanhæfi fyrirtækisins til að sinna skyldum sínum sé algert Bíll við bíl á Hellisheiði eftir að heyrúllur féllu á veginn Lilja mætt aftur á Alþingi Óveðrið hefur áhrif á flugáætlun Icelandair Vanalega óttist fólk að eitthvað hræðilegt sé að gerast Lýstu eftir manni á níræðisaldri „Skynsamlegt að spyrja þjóðina“ Snjóflóð hrifsaði með sér göngugarpa Fólk stillt að mestu á Akureyri „Stórslysalaust“ á Ísafirði í nótt Hvernig greiðir Ragnar Þór atkvæði í ágúst? Gefur skít í helvítishótanir Trumps Viðreins býður fram sinn fyrsta lista á Akranesi Unnið að tillögum um lengingu brimvarnargarða Landeyjahafnar „Vatnsbólið er nánast tómt, það er að tæmast“ Hleypt inn í hollum í Vesturbæjarlaug Eldri borgarar einmana en eigi erfitt með að rífa sig upp á ný Segir stjórnvöld vinna gegn ferðaþjónustunni Sjá meira