Friðrik leitar systkina, missti 30 kíló og fékk óvænt símtal frá Kate Bush Elín Albertsdóttir skrifar 23. apríl 2016 10:00 Friðrik með dóttur sinni, Maríu Von, sem er öflugur tónlistarmaður ekki síður en faðirinn. Friðrik er einstæður faðir og þau feðginin ná vel saman. Fréttablaðið/STEFÁN
Friðrik Karlsson tónlistarmaður er fluttur heim eftir rúmlega tuttugu ára búsetu í London. Hann hefur víða komið við, meðal annars leikið á 22 tónleikum með Kate Bush en á næsta ári verður haldið upp á 40 ára afmæli Mezzoforte. Mezzoforte verður með fyrstu tónleika sína hér á landi í langan tíma á Café Rosenberg 26. maí. Vafalítið bíða margir aðdáendur þess að heyra í hljómsveitinni sem verður 40 ára á næsta ári. Þá verður efnt til stórtónleika í Hörpu og boðið upp á þekktustu lög hljómsveitarinnar auk nýrra laga sem nú eru í smíðum. Þótt Mezzoforte spili lítið hér heima er hún eftirsótt víða um heim og heldur um 30 tónleika á ári. Í júní verða til dæmis tónleikar í London en þar spilaði sveitin síðast fyrir 20 árum. Löngu er uppselt á þá tónleika. „Það hefur verið nóg að gera undanfarið,“ svaraði Friðrik þegar við slógum á þráðinn til hans. „Um páskana var ég með í Jesus Christ Superstar. Þetta var sjöunda sýningin og hefur gengið mjög vel. Síðan var ég á Trúbrot-tónleikunum. Þá spilaði ég um daginn í rokkmessu hjá Ástjarnarkirkju sem sömuleiðis var mjög skemmtilegt. Núna erum við að undirbúa tónleika með Mezzoforte. Það er þegar orðið uppselt og við erum að íhuga aðra tónleika deginum áður. Svo erum við að fara norður á Akureyri bæði með Trúbrot og Mezzoforte. Við leikum allir úr Mezzoforte á Trúbrots-tónleikunum,“ segir Friðrik en með honum í hljómsveitinni eru Eyþór Gunnarsson, Jóhann Ásmundsson og Gunnlaugur Briem.Það hefur margt verið að gerast hjá Friðriki undanfarið og á næsta ári heldur Mezzoforte upp á 40 ára afmælið.Vísir/STEFÁNDóttirin fetar í fótspor föðurins Friðrik flutti heim frá London fyrir tveimur árum. „Ég er svo sem alltaf með annan fótinn í Englandi þar sem ég fæ þó nokkuð af verkefnum þar. Ég bjó í London í rúm 20 ár og það var eiginlega hugmynd dóttur minnar að flytja heim til Íslands,“ segir Friðrik sem er fráskilinn en dóttir hans, María Von, 14 ára, býr hjá honum. „Hún er mikil pabbastelpa. Hana langaði til að vera Íslendingur. Hún fann vel þegar við komum hingað hversu miklu meira frjálsræði það væri að búa á Íslandi. Hér geta unglingar farið einir í bíó sem þekkist ekki í London. Það er miklu einfaldara lífið hér,“ segir Friðrik. „María er eina barnið mitt og hún er að fikra sig áfram á tónlistarbrautinni. Hún fermdist fyrir stuttu og þá flutti hún tvö frumsamin lög á píanó. Ég beið á hliðarlínunni hvort hún væri með tónlistina í sér en svo allt í einu blómstraði hún í þessu,“ segir stoltur faðirinn.Tvö systkini í Þýskalandi Friðrik, sem er hálfur Þjóðverji, segir að mikil tónlist sé í föðurættinni en faðir hans fæddist í Berlín en kom til Íslands eftir stríð. „Það voru 40 ár á milli okkar pabba, hann var fæddur 1920. Pabbi var eins og aðrir Þjóðverjar mjög iðjusamur og ég fann fyrir þýskum áhrifum frá honum. Ég á tvö hálfsystkin í Þýskalandi sem ég er að vinna í að hitta. Ég hef lengi leitað að þeim og fann systur mína. Hún vildi hins vegar ekki hitta mig og það voru mikil vonbrigði. Ég hef hins vegar ekki gefist upp og vonast til að fá að hitta þau einhvern tíma,“ segir hann. „Mér finnst alltaf mjög gaman að koma til Berlínar, við í Mezzoforte höfum spilað þar nokkrum sinnum.“Mezzoforte eru hér alsælir á Svalbarða um árið.mynd/einkasafnMissti 30 kíló Á undanförnum árum hefur Friðrik gefið út fjölda diska með róandi slökunarmúsík. „Ég er búin að gefa út 20 slíka diska og það er safndiskur á leiðinni. Ég stunda hugleiðslu reglulega, jóga og pílates. Þar fyrir utan stunda ég sund daglega. Ég er því frekar heilbrigður,“ segir hann og hlær. „Ég hef alltaf verið inni á þessari heilbrigðu línu og það eykst frekar en hitt.“ Friðrik á afmæli á morgun og ætlar að bjóða dóttur sinni út að borða í tilefni dagsins. Hann borðar eingöngu lágkolvetnafæði og hefur gert það í rúmlega ár. Á þeim tíma hefur hann misst 30 kíló. „Ég fór á námskeið hjá Þorbjörgu Hafsteinsdóttur sem var frábært. Maður breytir um lífsstíl. Þorbjörg hafði mikil áhrif á mig. Eftir að ég byrjaði á lágkolvetna mat hef ég verið duglegur að elda heima. Ég er þó ekkert að troða þessu mataræði upp á dóttur mína.“Símtal frá Kate Bush Friðrik fékk símtal frá Kate Bush þegar hún ákvað að koma fram á nýjan leik eftir 35 ára hvíld frá tónlistinni. „Hún bað mig að vera í bandinu á 22 tónleikum sem voru í London. Það var rosalega gaman að upplifa það. Í salnum fyrsta kvöldið sátu Paul McCartney, Elton John ásamt öðrum stórstjörnum. Þetta er líklegast mitt stærsta verk,“ segir Friðrik. „Það er búið að biðja Kate að endurtaka þessa tónleika sem voru árið 2014 en hún hefur ekki sýnt því áhuga,“ segir hann. Þess má geta að þegar tónleikar hennar voru auglýstir seldust miðarnir upp á mettíma í Bretlandi. Friðrik segir að oft komi verkefni upp með litlum fyrirvara. „Það er reyndar mjög skemmtilegt að fá verkefni óvænt. Þegar Kate hringdi hélt ég reyndar að einhver væri að stríða í mér,“ segir Friðrik sem býst við að nóg verði að gera hjá sér í sumar.
Mest lesið Íbúar furða sig á horfnu listaverki Menning „Var að syrgja pabba þegar mamma dó“ Lífið Þjóðþekktir tónlistarmenn koma fram í heimahúsum Tónlist Oddvitaáskorunin: Lét gervigreindina sjá um kvöldmatinn Lífið Gjörsamlega búinn á því eftir að hafa prófað nýjasta æðið Lífið Megan Thee Stallion sakar Klay Thompson um framhjáhald Lífið Stjörnur fjármálabransans komu saman Lífið Fréttatía vikunnar: Jakkaföt, hlaupaföt og grænn loðbúningur Lífið Glæsilegar í Gamla Bíói Lífið Flóni og Alaska ekki lengur „bara vinir“ Tónlist Fleiri fréttir Megan Thee Stallion sakar Klay Thompson um framhjáhald Oddvitaáskorunin: Lét gervigreindina sjá um kvöldmatinn Allt það helsta frá Ungfrú Ísland „Var að syrgja pabba þegar mamma dó“ Fréttatía vikunnar: Jakkaföt, hlaupaföt og grænn loðbúningur Glæsilegar í Gamla Bíói Stjörnur fjármálabransans komu saman Eiginkonan hélt að Vígþór væri að grínast í fyrstu spurningu Hátindur Netflix réttur staður fyrir Baltasar Gjörsamlega búinn á því eftir að hafa prófað nýjasta æðið Gunnar Smári rís upp úr „rotnandi holdi“ í sumar Oddvitaáskorun: „Við höfum þurft að skera allt niður vegna hamfaranna“ Síðasti lærlingur Rakmaninoff látinn Sumir sáttir en flestir keppast við að tæta Michael í sig „Ég er búinn að eyðileggja keppnina“ Drakk óvart áfengi í fyrsta sinn og það undir stýri Mætti hættulegasta dýri Afríku og hélt að það væri „einhver belja“ Ísland: „Lauslátasta nunnan í klaustrinu“ Sigga Ósk er Ungfrú Ísland Hvað veistu um... Tenerife? Bein útsending: Nítján stúlkur vilja verða Ungfrú Ísland Það heitasta í veislutertum Orkugeirinn kom saman á ársfundi Orkuveitunnar Áttu að föndra dýr aftan á bolinn Keppast um titilinn Ungfrú Ísland í kvöld Jenner og Elordi verið að hittast síðustu mánuði Oddvitaáskorunin: Þegar byrjuð að skrifa ævisöguna Einhleypir og eftirsóttir sumarstrákar Rifjaði upp martröðina á Arnarhóli Fagnaði sigri með bumbukossi Sjá meira