Minna en hálfu prósenti hælisleitenda veitt staða flóttamanns 18. júní 2008 15:25 Flóttamaðurinn sem kom í gær þótti ekki öruggur í heimalandi sínu Sri Lanka.
Aðeins tveir höfðu fengið stöðu flóttamanns á Íslandi frá 1991 áður en par frá Sri Lanka kom í gær. Þá eru frá taldir þeir sem koma sem svokallaðir kvótaflóttamenn á vegum Sameinuðu þjóðanna. Annar þessara tveggja er einnig frá Sri Lanka og kom hingað nýverið en staða þessara þriggja Sri Lanka búa er þó sérstæð að því leyti að þau eru meðhöndluð fremur sem kvótaflóttamenn. Maðurinn sem kom hingað í gær ásamt maka sínum hafði verið túlkur á vegum friðagæsluliða frá Íslandi sem störfuðu á Sri Lanka. Hann var ekki lengur talinn öruggur á Sri Lanka vegna starfa sinna á vegum friðagæslunnar. Því var hafið það ferli að veita honum hæli í samstarfi við Noreg sem einnig hefur gert hið sama. Samkvæmt Helgu Halldórsdóttur hjá Rauða Krossi Íslands fékk hann álíka meðferð og kvótaflóttamenn, honum hefur verið útveguð bráðabirgðagisting í tvær vikur og síðan verður gerður samningur við sveitafélag að taka á móti honum. Hægt er að fá hæli eða dvalarleyfi á Íslandi á þrenna vegu. Í fyrsta lagi eru það svokallaðir kvótaflóttamenn sem fá stöðu flóttamanns fyrir stuðlan Sameinuðu Þjóðanna og koma gjarnan í hópum frá heimalandi sínu. Flestir kvótaflóttamenn sem hafa komið hingað eru frá fyrrum Júgóslavíulöndum. Síðan eru það þeir sem koma hingað til lands á eigin vegum og sækja um stöðu flóttamanns. Samkvæmt vef Mannréttindastofnunar Íslands hafa 438 manns sótt um slíka stöðu en aðeins þessir fjórir fengið. Síðan er hægt að veita dvalarleyfi af mannúðarástæðum sem hefur verið nýtt aðeins betur eða 20 sinnum síðan 2000. Ástæður þess að svo fáir sem koma hingað á eigin vegum fá stöðu flóttamanns geta verið margbreytilegar, til að mynda hafa sumir þeirra leitað hælis í öðrum löndum en fengið neitun þar og síðan getur umsóknarferlið tekið langan tíma vegna lagaumgjörða sem heftir möguleika margra. Hins vegar er hlutfallið á Íslandi langtum minna en í nágrannalöndum okkar, samkvæmt vef Mannréttindastofnunar, til dæmis voru 3000 manns sem sóttu um hæli í Danmörku árið 2004 og 1100 manns sem fengu það auk þess sem Danir taka við kvótaflóttamönnum.
Mest lesið Fegursta flugvél Íslands rifin Innlent Segir Repúblikönum að tala meira um afrek hans Erlent Skrifað undir viljayfirlýsingu vegna jarðgangna til Eyja Innlent Óttast að yfir áttatíu hafi farist Erlent Túlkunaratriði hvað eigi að gera við umsóknina Innlent „Þetta er auðvitað ekki mjög pólitískt sexí“ Innlent Tveimur bjargað úr göngum níu dögum eftir skyndiflóðin Erlent Líst ekki á breytingar Ingu á útivistartíma barna að vetri Innlent Einn enn með stöðu sakbornings vegna E. coli sýkingar á Mánagarði Innlent Ásakanir á víxl milli leyniþjónusta eftir skothríð í Kænugarði Erlent Fleiri fréttir Lægðardrag teygir sig yfir landið Myndir: Opnunarhóf nýs Kvennaathvarfs Tekinn á 190 þar sem má aka á 90 kílómetra hraða Einn enn með stöðu sakbornings vegna E. coli sýkingar á Mánagarði Skrifað undir viljayfirlýsingu vegna jarðgangna til Eyja Túlkunaratriði hvað eigi að gera við umsóknina Ruddist inn í íbúð og reyndi að komast inn á upptekið baðherbergið Fegursta flugvél Íslands rifin „Ekkert af þessu er beinlínis að hjálpa okkur“ „Þetta er auðvitað ekki mjög pólitískt sexí“ Slaka á kröfum um íbúðastærðir og verslunarrými á jarðhæð Með umtöluð símtöl og skilaboð á sínu borði Kalla eftir ákvörðun um milljarðaáform í Skálafelli Búið að opna fyrir umferð að nýju eftir bilunina Tímamót hjá Kvennaathvarfinu Annar vinningur hættir að safnast upp í Vikinglottó Sérstakt viðbragð á Ljósanótt vegna unglingadrykkju Hámark bílastæða við nýbyggingar falli niður Óvirk umferðarljós valda töfum Skuld fyrri eiganda stöðvi ekki skoðun bíls Höfum setið eftir í baráttu við glæpahópa Pallborðið: Línurnar lagðar fyrir spennandi þing Fulltrúar rússneska sendiráðsins kallaðir á teppið Þorgerður kallaði Rússa á teppið og auknar heimildir lögreglu Minnist dóttur sinnar sem lést á Íslandi Áfram stelpur verða að félagasamtökum: Margir gerendur um hvern og einn þolanda „Það er að verða til kynslóðaójöfnuður“ Víðáttumikil lægð fyrir sunnan land Líst ekki á breytingar Ingu á útivistartíma barna að vetri Eldur í þaki Rimaskóla í nótt Sjá meira