Frændi sýknaður af kynferðislegri misnotkun 18. júní 2008 17:49
Karlmaður var sýknaður í Héraðsdómi Austurlands í dag en hann var ákærður fyrir að hafa káfað á kynfærum stúlku sem þá var 7-8 ára gömul. Maðurinn er frændi stúlkunnar og sagðist faðir hennar hafa komið að honum að nudda kynfæri hennar. Í dómnum segir að upphaf málsins hafi hafist með bréfi frá því í nóvember árið 2007 þegar félagsmálayfirvöld í Fljótsdalshéraði sendi rannsóknardeild lögreglunnar á Eskifirði bréf þar sem óskað var eftir rannsókn á meintu kynferðisbroti gagnvart barninu. Þar kemur fram að ráðgjafi hafi í október sama ár átt viðtal við foreldra stúlkunnar sem skýrðu frá því að dóttirin hefði verið að taka þátt í kynferðislegum leikjum með örðum stúlkum. Hafi faðir stúlkunnar þá greint frá því að að hann hefði einu sinni komið að henni þegar hún var um 7-8 ára gömul með frænda sínum þar sem hann hafi verið að nudda kynfæri hennar. Sagði faðirinn að eftir það hefði hann reynt að sjá til þess að stúlkan væri ekki ein með frændanum en ekki hafi verið leitað til barnaverndaryfirvalda vegna málsins. Stúlkan krafðist miskabóta upp á 500.000 krónur. Í dómnum er m.a tekið tillit til þess að faðir stúlkunnar hafi sagst hafa séð ákærða með höndina í klofi stúlkunnar en kvaðst þó ekki hafa séð nákvæmlega hvar eða hvort hann var með höndina innan eða utan klæða. Framburður vitnisins var því ekki talinn ljós að þessu leyti. Í niðurstöðum dómsins er sagt að þrátt fyrir að brotaþoli beri ýmis einkenni kynferðislegrar misnotkunar þyki með vísan til ósamræmis í framburði stúlkunnar og annara vitna, ekki talið sannað, svo hafið sé yfir skynsamlegan vafa, að ákærði hafi gerst sekur um háttsemi þá sem greini í ákæru. Ber því að sýkna ákærða af refsikröfu ákæruvalds í þessu máli. Dóm Héraðsdóms Austurlands má lesa í heild sinni hér.
Mest lesið Lögregluaðgerð á Laugavegi Innlent Sérsveitin bregst við „alvarlegu atviki“ á Kársnesi Innlent Meintur byssumaður 21 árs góðkunningi leyniþjónustunnar Innlent „Aulalegasti bófinn í bænum“ Innlent Ofurhljóðfrárri eldflaug skotið að Úkraínu Erlent „Hvað hafa þau að fela?“ Innlent Bandarískir sendimenn mælist til þess að Trump sé hunsaður Erlent Enn öðru flugi aflýst Innlent „Hamast í því að koma í veg fyrir að Miðflokkurinn komist að“ Innlent Skjálftahrina úti af Reykjanesi Innlent Fleiri fréttir Sérsveitin bregst við „alvarlegu atviki“ á Kársnesi „Hamast í því að koma í veg fyrir að Miðflokkurinn komist að“ „Hvað hafa þau að fela?“ Enn öðru flugi aflýst Lögregluaðgerð á Laugavegi Sprengisandur: Páll stýrir þéttpökkuðum þætti Meintur byssumaður 21 árs góðkunningi leyniþjónustunnar Skjálftahrina úti af Reykjanesi Maðurinn er fundinn „Aulalegasti bófinn í bænum“ Hefja formlegar viðræður og senda væna pillu í leiðinni D og B endurnýja heitin í Fjarðabyggð Tómas tjáir sig um dóminn Á sýklalyfjum í 120 daga: „Þetta er enginn brandari“ Gæti dregið til tíðinda á næstu dögum eða stundum Sérsveitarmenn flugu til Ísafjarðar vegna vopnaðs manns „Einhvers konar toppur á ísjakanum“ Tvö mál ráði úrslitum Icelandair aflýsir fimm brottförum í dag Almennur borgari veitti bílnum eftirför Óttast um framtíð dóttur sinnar þegar þau geta ekki lengur hjálpað Flúðu eftir að hafa ekið á gangandi vegfaranda Tulsi Gabbard lætur af embætti Allt veltur á því hvort handaband teljist handsal Námsbækur barnanna búnar til „löngu áður en mamma og pabbi fæddust“ „Þetta hjól er næstum alltaf tómt“ Íslendingur vann 336 milljónir króna Sektaður fyrir að vera á nagladekkjum Hildur vilji Einar í meirihluta hvernig sem fer Var í geðrofi þegar Vinafélag Íslands-Norður-Kóreu var stofnað Sjá meira