Hver mínúta skipulögð hjá Eurovision-hópnum 27. apríl 2009 05:00 Skipulagður Jónatan Garðarsson hefur skipulagt hverja einustu mínútur hjá Eurovisionhópnum enda er mikilvægt að allir gangi í takt. „
Ég vinn bara svona, ætli það sé ekki ástæðan fyrir því að ég er enn í þessu djobbi," segir Jónatan Garðarsson, liðstjóri íslenska Eurovision-hópsins. Hópurinn fékk á föstudag yfirlit frá Jónatani hvernig dagskrá hópsins er háttað í Mosvku. Óhætt er hægt að fullyrða að hver einasta mínúta, hvert skref, sé skipulagt. Eiginlega er hvergi autt gat í tímaætluninni sem nær frá klukkan fjögur að morgni sunnudagsins 3.maí til klukkan fjögur síðdegis sunnudagsins 17.maí. Meðal þess sem Jónatan var búinn að setja niður á blað voru matmálstímar og háttatíminn. „Þegar svona mikið gengur á þarf oft að minna fólk á þessa annars sjálfsögðu hluti." Jónatan segist alltaf hafa gert svona skjöl fyrir þá Eurovision-hópa sem hann hefur farið út. Og þeir eru þó nokkrir. „Þetta skjal hefur verið svona tvö ár í mótun, fyrstu árin skrifaði ég dagskránna bara frá degi til dags en það þótti ekki heppilegt enda finnst fólki betra að vita með góðum fyrirvara hvað sé að gerast," útskýrir Jónatan.„Það er mjög nauðsynlegt á svona stórum viðburði að allir gangi í takt." Að sögn Jónatans er öryggisgæslan nokkuð mikil í Moskvu, menn þurfa til að mynda að vera með öll sín skjöl á sér því annars gætu þeir verið í vondum málum. „Öryggisgæslan er alltaf meiri eftir því sem austar dregur í álfunni, við verðum með einn til tvo öryggisverði og svo sérstaka rútu undir hópinn og einn fólksbíl," útskýrir Jónatan sem kveðst ekki hafa hugmynd um hvernig týpa sú ágæta bifreið verður. „Í fyrra vorum við á Skoda og svo höfum við verið á Benz, hins vegar skiptir mestu máli að hann geti komið manni á milli staða."- fgg
Mest lesið Karl Th. Birgisson er látinn Lífið Gömul leyndarmál koma upp á yfirborðið Bíó og sjónvarp Fóru áttatíu prósent fram úr áætlun Lífið Leiðir skilja hjá Siggu Dögg og Sævari Eyjólfs Lífið Dauðkveið fyrir tónleikunum en þeir komu á óvart Gagnrýni Þrjátíu árum fagnað með fullu húsi og mikilli matarveislu Lífið samstarf Streymisveitan Apple TV loksins á Íslandi Bíó og sjónvarp Óttinn við að vera of venjuleg drifkrafturinn Tíska og hönnun Kampakát yfir kampavíni og kavíar Lífið Blood of Dawnwalker: Tíminn er þinn helsti óvinur Leikjavísir Fleiri fréttir Karl Th. Birgisson er látinn Lena Dunham orðin mamma með hjálp staðgöngumóður Fóru áttatíu prósent fram úr áætlun Leiðir skilja hjá Siggu Dögg og Sævari Eyjólfs Kampakát yfir kampavíni og kavíar Amanda Seyfried og Thomas Sadoski skilin Hafi ekki sjálfur sparkað Macklemore: „Ég myndi aldrei bregðast aðdáendum“ Hundrað ára virðulegt setur með grænu baði og gufu Bob Mackie er látinn Friðrik Þór og Jóna Vigdís ástfangin Macklemore tjáir sig: „Fólk er drepið í dag og fólk verður drepið á morgun“ Æstir í nektarmyndir Mörthu Stewart Vakna við Star Wars-lagið alla morgna Hvað veistu um… Titanic? Húðdrottning bauð í gellugusu Ed Sheeran sparkar Macklemore Hið alræmda „Epstein drap sig ekki“-samsæri Ein pilla dró Panettiere til dauða Heldur sig til hlés og lifir skírlífi Vala Matt kom heljarinnar búslóð fyrir í sextíu fermetra íbúð Stjörnulífið: Í fyrsta skipti í bikiníi í útlöndum „Ég byrjaði að lesa kaflann og fór bara að gráta“ Skúli Jón og Jennifer gengin í hnapphelduna Tekur árásum á samfélagsmiðlum fagnandi Krakkatía vikunnar: Tollering, Sims og Einar Áskell Lady Gaga orðin mamma Herbert kveikti í myndverinu í fyrsta þætti Presturinn sem hataði kristinfræði Fréttatía vikunnar: Þagnargreiðsla, tannbursti og hálfvitar Sökuð um að siga fylgjendum á móður fyrrverandi Sjá meira