Bíó og sjónvarp

Fram­leiðslu nýju Be­ver­ly Hills þáttanna hætt

Atli Ísleifsson skrifar
Lwikkonurnar Tori Spelling og Jennie Garth fóru með hlutverk Donnu og Kelly í þáttunum.
Lwikkonurnar Tori Spelling og Jennie Garth fóru með hlutverk Donnu og Kelly í þáttunum. Getty
Bandaríska sjónvarpsstöðin Fox hefur tilkynnt að ekki verði framleiddir fleiri þættir af Beverly Hills með upprunalegum leikurum þáttanna. Þetta varð því stutt gaman fyrir hörðustu aðdáendur þáttanna en einungis voru gerðir sex þættir eftir að ákveðið var að blása nýju lífi í þættina.

Hollywood Reporter greinir frá því að tilkynningin sé reiðarslag fyrir einhverja leikarana, sem höfðu einhverjir gert sér vonir um að „nokkrar þáttaraðir“yrðu framleiddar. Áhuginn á þessum nýju þáttunum virðist hins vegar hafa verið takmarkaður sé litið til áhorfs.

Í þáttunum sneru þau Brian Austin Green, Gabrielle Carteris, Ian Ziering, Jason Priestley, Jennie Garth, Shannen Doherty og Tori Spelling aftur sem þau David, Andrea, Steve, Brandon, Kelly, Brenda og Donna. Leikarinn Luke Perry, sem fór með hlutverk Dylan í upprunalegu þáttunum, lést fyrr á árinu.

Upprunalegu þættirnir, sem fjölluðu um ástir og örlög táninga í hverfinu Beverly Hills í Los Angeles, munu mikilla vinsælda árunum 1990 til 2000.


Tengdar fréttir

Luke Perry látinn

Lést á sjúkrahúsi umvafinn ættingjum og vinum.

Stjörnurnar minnast Luke Perry

Stjörnurnar í Hollywood syrgja nú leikarann Luke Perry sem lést á sjúkrahúsi í Bandaríkjunum fyrr í dag umvafinn fjölskyldu og vinum.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×