Chelsea upp í 4. sætið eftir fyrsta heimasigur Lampard

Ingvi Þór Sæmundsson skrifar
Chelsea-menn fagna marki Jorginhos.
Chelsea-menn fagna marki Jorginhos. vísir/getty
Chelsea er komið upp í 6. sæti ensku úrvalsdeildarinnar eftir 2-0 sigur á Brighton á Stamford Bridge í dag.

Þetta var fyrsti sigur Franks Lampard sem knattspyrnustjóra Chelsea á heimavelli.

Staðan var markalaus í hálfleik en á 50. mínútu kom Jorginho Chelsea yfir með marki úr vítaspyrnu.

Á 76. mínútu kom Willian Chelsea í 2-0 með skoti sem fór af varnarmanni og inn.

Brighton, sem er án sigurs í síðustu sex leikjum, er í 16. sæti deildarinnar með sex stig.

Bein lýsing

Leikirnir






    Fleiri fréttir

    Sjá meira