Enski boltinn

Klopp ekki á leið til Juventus: „Þetta er kjaftæði“

Ingvi Þór Sæmundsson skrifar
Klopp er ekki á förum frá Liverpool.
Klopp er ekki á förum frá Liverpool. vísir/getty
Jürgen Klopp, knattspyrnustjóri Liverpool, segir ekkert hæft í þeim sögusögnum að hann taki við Juventus í sumar.

Ítalíumeistararnir eru í stjóraleit og Klopp er meðal þeirra sem hafa verið orðaðir við Juventus. En hann segist ekki vera á förum frá Liverpool.

„Ég er hrifinn af þessari deild, Ítalía er fallegt land en þetta er kjaftæði. Það er ekkert til í þessum sögusögnum. Ég fer ekki frá Liverpool,“ sagði Klopp.

„Ég þekki ítölsku deildina vel og er hrifinn af henni en ég verð áfram hjá Liverpool.“

Klopp undirbýr nú Liverpool-liðið fyrir úrslitaleik Meistaradeildar Evrópu á laugardaginn. Þar mætir Rauði herinn Tottenham á Wanda Metropolitano, heimavelli Atlético Madrid.


Tengdar fréttir

Klopp skaut fast á Guardiola

Stjórar bestu liðanna á Englandi, Pep Guardiola og Jürgen Klopp, eru í léttu sálfræðistríði sín í milli sem er ekkert að taka enda.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×