Enski boltinn

Klopp skaut fast á Guardiola

Henry Birgir Gunnarsson skrifar
Þessir herramenn kunna listina að skjóta á andstæðinginn.
Þessir herramenn kunna listina að skjóta á andstæðinginn. vísir/getty
Stjórar bestu liðanna á Englandi, Pep Guardiola og Jürgen Klopp, eru í léttu sálfræðistríði sín í milli sem er ekkert að taka enda.

Pep hefur skotið á Liverpool og gert mikið úr því hversu mikilvægt, og erfitt, það sé að vinna ensku úrvalsdeildina. Liverpool vann hana síðast 1990.

Klopp er kannski ekki búinn að vinna deildina með Liverpool en hann er orðinn fastagestur í úrslitaleik Meistaradeildarinnar. Hann nýtti tækifærið og skaut á Guardiola.

„Guardiola verður að segja að enska deildin sé erfiðasti titillinn því það er svo langt síðan hann fór í úrslitaleik Meistaradeildarinnar,“ sagði Klopp og margir hafa haft gaman af þessu skoti hans í dag.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×